Alex: Vil fara í undanúrslit Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 12. janúar 2008 15:30 Alexander Petersson er hér með Ólafi Stefánssyni, félaga sínum í landsliðinu. Mynd/Vilhelm
Alexander Petersson segir í viðtali við Vísi að hann stefni á undanúrslit á EM í Noregi með íslenska landsliðinu. „Möguleikar okkar eru góðir en við getum líka auðveldlega tapað öllum leikjunum. Þannig er það bara í EM, þarna eru samankomin bestu liðin í heiminum. En ég myndi vilja komast að minnsta kosti í undanúrslit keppninnar," sagði Alexander. Og hann segir að þetta sé vel raunhæft. „Með smá hepppni og ef allir leikmenn haldast heilir getum við vel náð þessum árangri." Helsta umræðuefnið í aðdraganda mótsins er varnarleikur liðsins og markvarsla. „Jú, þetta tvennt er ákveðið vandamál. Ég held að Sverre verði með okkur en veikindin hans munu örugglega setja strik í reikninginn. En við erum með góða leikmenn og ef við verðum grimmir í okkar varnarleik held ég að það verði ekkert of stórt vandamál." „Ég hef meiri áhyggjur af markvörslunni. En að sama skapi má segja að ef vörnin verði góð gæti markvarslan fylgt í kjölfarið." Alexander hefur undanfarið átt við meiðsli að stríða en hann mun æfa með íslenska liðinu í dag á nýjan leik. „Ég er núna búinn að fá hvíld í rúma viku sem hefur verið kærkomin. Mér líður mun betur. Ég veit ekki hversu mikið ég get spilað í leikjunum gegn Tékklandi en það verður örugglega eitthvað." Ísland mætir Tékklandi í tveimur æfingaleikjum á morgun og á mánudag en það verður lokaleikur liðsins fyrir EM sem hefst á fimmtudaginn næstkomandi. Alexander er á mála hjá þýska úrvalsdeildarliðinu Flensburg þar sem hann er á sínu fyrsta tímabili. „Flensburg er auðvitað topplið með tvo leikmenn í hverri stöðu og það er gott að þurfa ekki að spila 60 mínútur í hverjum einasta leik."
Mest lesið „Í fyrsta sinn sem við vinnum ósanngjarnt“ Íslenski boltinn Íslenskir dómarar úti í kuldanum: „Þetta er auðvitað svekkjandi“ Fótbolti Pínleg mistök Neuer gáfu hraðasta mark í sögu deildarinnar Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Þurfti að gefa í þegar maginn sagði til sín Sport Sjáðu sigurmark Guimaraes og markaveislu Chelsea Enski boltinn Bestu tilþrifin: Plakat á Höfn, ótrúleg karfa nýliðans og svakalegur þristur Körfubolti Líktu Álftanesi við Bayern München Körfubolti Aflýstu leik vegna skutlukasts Fótbolti Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Enski boltinn Utan vallar: Það á enginn séns í kónginn Fótbolti Fleiri fréttir Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Sjá meira