Margar stórstjörnur fjarverandi á EM í handbolta Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 7. janúar 2008 10:45 Ivano Balic er af mörgum talinn besti handknattleiksmaður heims. Nordic Photos / Bongarts
Í dag eru aðeins tíu dagar þar til EM í handbolta hefst í Noregi. Þó er þegar ljóst að margar af stærstu handboltastjörnum Evrópu verða fjarverandi. Íslenska landsliðið er að vísu vel sett og allir bestu leikmenn liðsins eru klárir í slaginn. Hið sama verður þó ekki sagt um mörg af sterkustu liðum Evrópu. Evrópumeistarar Frakka hafa titil að verja en margir leikmenn úr þeirra röðum eiga við meiðsli að stríða. Ísland er með Frakklandi í riðli. Michael Guigou og Joel Abati verða ekki með en stórskytturnar Nikola Karabatic og Daniel Narcisse hafa þó báðir náð sér af meiðslum og verða með í Noregi. Annað mál er þó hvort að leikformið þeirra sé nægilega gott. Þá er einnig óvíst hvort að Bertrand Gille verði með en hann meiddist nýlega. Ísland er einnig með Svíþjóð og Slóvakíu í riðli. Þetta er fyrsta stórmót Svía síðan 2005 og aðeins fjórir leikmenn eru eftir úr Evrópumeistaraliði þeirra frá árinu 2002. Það eru Tomas Svensson, Johan Petersson, Martin Boquist og Marcus Ahlm. Það er langt síðan að Stefan Lövgren lék með sænska landsliðinu síðast og ekki útlit fyrir að hann verði með í Noregi. Sænska landsliðið lék tvo æfingaleiki um helgina, gegn Króatíu og Slóveníu. Svíar töpuðu fyrri leiknum, gegn Króatíu, 31-26, en unnu svo Slóvena í gær, 34-31. Af öðrum stórþjóðum á EM má nefna Dani sem verða án Sören Stryger og Per Leegard á EM. Þá er einnig óvíst hvort að fyrirliðinn Joachim Boldsen verði með en það mun ráðast á því hvort hann verði leikfær fyrir æfingaleiki Dana gegn Þjóðverjum um helgina. Króatar verða án tveggja sterkustu leikmanna sinna, þeirra Mirza Dzomba og Ivano Balic. Það er reyndar ekki útséð með Balic en útlitið er ekki gott. Þá er besti leikmaður Tékka, Filip Jicha, afar tæpur fyrir mótið í Noregi. Einn besti markvörður heims, Þjóðverjinn Henning Fritz, meiddist á fingri í æfingaleik um helgina og mun það ráðast á batanum í vikunni hvort hann verði með í Noregi.
Mest lesið Orri grátlega nálægt því að tryggja stig fyrir Real Sociedad Fótbolti Uppgjörið: Breiðablik - Grindavík/Njarðvík 4-1| Breiðablik kláraði þetta í fyrri hálfleik Íslenski boltinn Keppa í róðri með krókódílum Sport Heimsmeistaramótið í rallýakstri hættir við keppni í Sádi-Arabíu Sport ÍBV beið eftir betra veðri og sótti sigur Handbolti Ungstirni Manchester City tryggðu liðinu stórsigur Enski boltinn Infantino beðinn um að gefa upp gögn um sölu heimsmeistaramótsins Fótbolti „Vitum hvernig fótbolta við viljum spila og hvað við stöndum fyrir“ Fótbolti Markaveislur og stórsigrar í Evrópudeildinni Fótbolti „Hversu mikil pressa var á honum?“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Stórsigur hjá Magdeburg og svekkjandi jafntefli í Danmörku ÍBV beið eftir betra veðri og sótti sigur Reynir Þór og félagar töpuðu með einu marki í mikilli dramatík Í skýjunum með dönsku nýlenduna í Þorpinu „Erum að spila fyrir allt Þórs samfélagið“ „Þetta móment á þessum stað á móti KA fyrir mitt félag að sjá fögnuðinn og upplifa hann var bara æðislegt“ Haukar á toppinn og jafntefli á Selfossi Valur bætti vörnina úr síðasta leik Elín Rósa og Díana Dögg unnu stórsigur Þórsarar höfðu betur í slagnum um Akureyri Orri Freyr markahæstur gegn Íslendingaliðinu Ófært frá Eyjum og leiknum frestað Íslendingaliðið vann bikarinn með tvo ólöglega Missti eins árs gamlan son sinn Elín Klara slær í gegn og uppfyllir brátt draum sinn Snorri Steinn valdi elítuhóp úr Olís-deildinni Valur rétti af skelfilega byrjun Íslendingarnir fóru ekki mjúkum höndum um lærisveina Rúnars „Við höfum óbilandi trú á okkur sjálfum “ Uppgjörið: HK - ÍR 18-20 | Tæpur sigur ÍR í Kópavoginum Haukar á flugi Sautján mörk Gunnars dugðu skammt Fram á toppinn og flautumark á Selfossi Haukur leiddi endurkomu Löwen Danskt stórlið búið að klófesta Elínu Klöru ÍBV samdi við bandarískan hermann „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Uppgjörið: Afturelding - FH 33-33 | Allt jafnt eftir háspennuleik Þórsarar komnir á blað Sextán íslensk mörk í Meistaradeildinni Sjá meira
Uppgjörið: Breiðablik - Grindavík/Njarðvík 4-1| Breiðablik kláraði þetta í fyrri hálfleik Íslenski boltinn
„Þetta móment á þessum stað á móti KA fyrir mitt félag að sjá fögnuðinn og upplifa hann var bara æðislegt“
Uppgjörið: Breiðablik - Grindavík/Njarðvík 4-1| Breiðablik kláraði þetta í fyrri hálfleik Íslenski boltinn