Spáir rúmlega 14% ársverðbólgu í júlí 8. júlí 2008 10:49
Greining Glitnis spáir rúmlega 14% ársverðbólgu í þessum mánuði. Jafnframt er gert ráð fyrir að verðbólgan verði töluverð fram á haust. Greiningin fjallar um verðbólguna í Morgunkorni sinu. Þar segir að greiningin geri ráð fyrir að mánaðarleg verðbólga taki við sér á nýjan leik eftir gengislækkun á undanförnum vikum. Vísitala neysluverðs mun hækka um 1,6% milli júní og júlí. Hækkun VNV í ágúst og september verður einnig töluverð. Gangi spáin eftir mun ársverðbólga mælast 14,3% í júlí og ná hámarki í 15,6% í ágúst. Helsta orsök er gengislækkun krónunnar en verð á erlendri mynt hefur hækkað um nálægt 7%, samkvæmt gengisvísitölu, frá því síðasta verðbólguspá var unnin. Aðrir þættir hafa einnig áhrif og má þar nefna mikla eldsneytisverðshækkun erlendis. Á móti gengisáhrifum vega áhrif vegna sumarútsölu en líklegt er að þau verði meiri í ár en undanfarin ár vegna þess að verðmæling fer fram á öðrum tíma mánaðarins núna. Greiningin spáir því að verðbólgan muni hjaðna hratt á næsta ári en nokkrir þættir munu vera þess valdandi. Hratt mun draga úr innlendum kostnaðarþrýstingi á seinni hluta þessa árs og eftirspurn mun að sama skapi minnka.
Mest lesið Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Viðskipti innlent „Það eru engin fórnarlömb hér“ Viðskipti innlent Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Viðskipti innlent „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Viðskipti innlent Hækka stýrivexti Viðskipti innlent „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ Viðskipti innlent Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar Viðskipti innlent Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu Viðskipti innlent Loka á umdeilda veðmálasíðu í Danmörku Viðskipti erlent Fleiri fréttir Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ „Biðin er dýrust“ Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Sjá meira