Síminn og Ölfus í samstarf 23. júní 2008 15:47 Elín Rós Sveinsdóttir, forstöðumann á Fyrirtækjasviði ásamt Ólafi Áka Ragnarssyni, bæjarstjóra sveitafélagsins Ölfuss.
Síminn og sveitarfélagið Ölfus hafa undirritað samkomulag sem felur í sér að Síminn mun sjá um heildarþjónustu á sviði fjarskipta- og upplýsingatækni fyrir sveitarfélagið. Í tilkynningu frá Símanum kemur fram að Síminn mun setja upp og reka nýja IPsímstöð fyrir sveitarfélagið. Einnig mun Síminn í samstarfi við Sensa hanna, setja upp og sjá um rekstur á netumhverfi fyrir allar stofnanir sveitafélagsins þar á meðal grunnskólann sem mun verða með þráðlaust netumhverfi sem allir kennarar og nemendur skólans munu hafa aðang að. Auk þess mun Síminn sjá um rekstur á póstþjónustu sveitarfélagsins og hýsingu á vefsetri þess. Ólafur Áki Ragnarsson, bæjarstjóri sveitarfélagsins segir samninginn við Símann til mikilla hagsbóta fyrir íbúa í Þorlákshöfn og nærsveitum. „Þessi samningur við Símann er stórt framfaraspor bæjarfélagsins í upplýsingatæknimálum. Bæjarstjórn Ölfus hefur metnaðarfull markmið í fjarskipta- og upplýsingatæknimálum fyrir bæjarfélagið og Síminn mætti best okkar kröfum. Samningurinn mun umbylta núverandi ástandi í þessum málaflokki í öllum stofnunum bæjarins, þar á meðal í grunnskólanum, leikskólanum, bæjarskrifstofunni, bæjarbókasafninu, þjónustumiðstöðinni og við höfnina, " segir bæjarstjórinn. Elín Rós Sveinsdóttir, forstöðumaður á Fyrirtækjasviði Símans segir samninginn við Ölfus mikið ánægjuefni fyrir Símann og niðurstaða sameiginlegrar þarfagreiningar á fjarskipta- og upplýsingatæknimálum sveitarfélagsins. Elín Rós segir að með þessum samning fái bæjarstjórn Ölfusar aðgang að nýjustu tæknilausnum frá Microsoft fyrir starfsfólk sitt eins og Windows Vista og Microsoft Office Enterprise ásamt aðgangi að fyrirtækjapósti Símans sem er hluti af HMC (Hosted Messaging and Communication Services) rekstrarumhverfi frá Microsoft sem tryggir viðskiptavinum Símans mikið rekstraröryggi. Í dag er Síminn eina hýsingarfyrirtækið hérlendis sem nýtir HMC lausn til að tryggja rekstraröryggi hýstra upplýsingakerfa.
Mest lesið Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Viðskipti innlent Fá að kaupa Pei og Motus Viðskipti innlent Fleiri fréttir Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Sjá meira