Skipti meðal þriggja bjóðenda í slóvenska símann 4. janúar 2008 15:49 Brynjólfur Bjarnason, forstjóri Skipta. MYND/Róbert
Skipti hf., móðurfélag Símans, gerði í dag tilboð í slóvenska fjarskiptafélagið Telekom Slovenije. Til stendur að selja tæplega helmingshlut í félaginu í þessari umferð til kjölfestufjárfestis sem mun í kjölfarið þurfa að gera öðrum hluthöfum í félaginu yfirtökutilboð, að undanskildu slóvenska ríkinu sem halda mun eftir fjórðungshlut. Fram kemur í tilkynningu frá Skiptum að tilboðið sé gert með hefðbundnum fyrirvörum og bundið trúnaði samkvæmt samkomulagi við slóvensk stjórnvöld.Auk Skipta skiluðu tvö önnur félög tilboði í slóvenska símafélagið, ungverska fyrirtækið Magyar Telekom, sem er í eigu Deutsche Telekom, og fjárfestingarsjóðirnir Bain Capital og Axos Capital. Ákvað einkavæðingarnefnd slóvensku ríkisstjórnarinnar að biðja öll félögin að skila inn nýjum tilboðum fyrir 15. janúar næstkomandi. Þá hyggst nefndin koma saman að nýju og tilkynna um endanlega niðurstöðu.Telekom Slovenije er leiðandi fjarskiptafyrirtæki í Slóveníu auk þess að vera með vaxandi starfsemi í nágrannalöndunum. Hjá félaginu starfa um 4.400 starfsmenn. Tekjur félagsins á fyrstu 9 mánuðum ársins 2007 námu um 54 milljörðum króna og hagnaður félagsins fyrir skatta nam um 9,4 milljörðum íslenskra króna.Fram hefur komið í fréttum að Árni Mathiesen fjármálaráðherra hefur heimilað eigendum Skipta að fresta því að setja félagið á markað fram í lok mars. Samkvæmt samningi sem gerður var við sölu Símans árið 2005 áttu Skipti að fara á markað fyrir árslok 2007 þar sem almennum fjárfestum yrði gefinn kostur á að kaupa um 30 prósent í félaginu.
Mest lesið Tollasamkomulag Bandaríkjanna og Kanada út um þúfur Viðskipti erlent Landsbankinn hækkar líka vexti Viðskipti innlent Mátti rifta kaupum á bíl sem bilaði þremur dögum eftir kaup Neytendur JYSK opnar nýtt og glæsilegt vöruhús í Mosfellsbæ Samstarf Geti munað allt að tvö þúsund krónum á matarkörfunni eftir verslunum Neytendur Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst Viðskipti innlent Jón Þór fer til Samherja Viðskipti innlent Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Viðskipti innlent Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Viðskipti innlent „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Viðskipti innlent Fleiri fréttir Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Sjá meira