Segir DV ekki eiga í fjárhagserfiðleikum Breki Logason skrifar 13. ágúst 2008 13:35 Hreinn Loftsson stjórnarformaður Birtíngs.
Hreinn Loftsson stjórnarformaður Birtíngs segir að unnið hafi verið að því frá áramótum að koma DV undir hatt fyrirtækisins en tilkynnt var í gær að DV færi undir útgáfufélagið Birtíng. Hreinn segir fjárhagsstöðu DV góða og segir bjarta tíma framundan í útgáfu blaðsins. Tímarit Birtíngs ganga vel að hans sögn og bendir Hreinn á að Séð og heyrt hafi mælst með meiri lestur en Morgunblaðið. „Við erum með tvö félög sem eru í meirihlutaeigu sama aðila og vildum ekki setja DV inn undir Birtíng fyrr en núna. Útgáfufélagi DV verður lokað í rólegheitum en það á fyrir skuldum svo það er ekkert vandamál," segir Hreinn og bendir á að þetta sé lokahnykkurinn í ferli sem hófst um svipað leyti og félagið fékk DV og meirihlutann í Birtíngi í gegnum félag sem heitir Hringur og var áður í eigu Baugs, en er nú að mestum hluta í eigu Stoða Invest. Hringur á um 85% hlut í Birtíngi, Hreinn á um 5% sjálfur og aðrir starfsmenn og stjórnendur Birtíngs eiga restina. Hreinn segir það hafa verið skynsamlegt að koma DV aftur á legg og hafa það í sér félagi. Um síðustu áramót hafi hinsvegar verið stigið stórt skref í að sameina yfirstjórn og rekstur þessarar tveggja fyrirtækja. „Núna sjáum við mikinn vind með DV og þessi lokahnykkur mun stuðla að aukinni samnýtingu í starfsmönnum, ljósmyndadeild og fleiru." Hreinn segir að DV hafi gengið vel undir ritstjórn Reynis Traustasonar á þessu ári. „Við sjáum verulega aukningu í áskrifendum en vissulega eru erfiðir tímar framundan. Það þýðir samt ekkert að hætta öllu því einhverntíma komumst við út úrþessari kreppu sem menn eru að tala um." Hreinn segir að hlutafjáraukning hafi átt sér stað í Birtíngi sem standi vel og sé skuldlaust fyrirtæki. „Sum tímaritanna þarna eru mjög öflug á markaðnum og hafa verið að gera góða hluti lengi," segir Hreinn og bendir á Gestgjafann, Vikuna og Séð og heyrt. „Svo dæmi sé tekið þá hefur Séð og heyrt mælst með meiri lestur en Morgunblaðið. Önnur tímarit hjá okkur eru að hefja sinn feril en í það heila hefur þetta gengið nokkuð vel. Hinsvegar eru þrengingar á markaðnum sem allir þekkja."
Mest lesið Uppsagnir fram undan og óttinn vex Atvinnulíf „Hvað haldið þið að þetta kosti? Milljarða, milljarða, milljarða“ Viðskipti innlent Brynja til Fastus frá Samkaupum Viðskipti innlent Efla ráðgjöf við nemendur HR um kjaramál Viðskipti innlent Munu opnu vinnurýmin hverfa eins og hornskrifstofurnar? Atvinnulíf Þurrsteypa styttir biðtíma og dregur úr raka í byggingum Samstarf Klára kaupin á Ofar og leita að nýjum framkvæmdastjóra Viðskipti innlent Eins og James Bond: Huggulegur, ferðast, leysir vandamál og drekkur martini Atvinnulíf John Strickland: Icelandair þarf að vera snjallt þegar nýjar þotur breyta leiknum Viðskipti innlent Laufey nýr sérfræðingur hjá Landsbankanum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Brynja til Fastus frá Samkaupum Efla ráðgjöf við nemendur HR um kjaramál „Hvað haldið þið að þetta kosti? Milljarða, milljarða, milljarða“ Klára kaupin á Ofar og leita að nýjum framkvæmdastjóra Laufey nýr sérfræðingur hjá Landsbankanum Eykur strandveiðikvóta og gerir vertíðina þá „stærstu frá upphafi“ Tæplega 4,6 milljarða tap á rekstri borgarinnar Lægsta matvöruverðið enn oftast að finna í Prís Rakel nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Segir ríkar ástæður fyrir því að flugmenn eigi að vera vel launaðir Alvotech aflaði 20,6 milljarða í útboði og áskriftum John Strickland: Icelandair þarf að vera snjallt þegar nýjar þotur breyta leiknum Samkeppnishæfni Íslands og annarra Norðurlanda fellur milli ára Þróunin í þá átt að verða enn meiri kaupendamarkaður Nýtt endurskoðunar- og ráðgjafarfyrirtæki undir merkjum LOGOS Villi Birgis grætur Krambúðina á Akranesi Bláa lónið festir kaup á Arctic Adventures og stefnir á markað LánHeimur ekki undir eftirliti fjármálaeftirlits ESB gæti markað endalok umdeildra skilmála Icelandair Byrjaði sem fulltrúi í söludeild dótturfyrirtækis og er nú framkvæmdastjóri hjá Eimskip Klára námslánið eða greiða inn á húsnæðislánið? Milla ætlar í formanninn Efna til útboðs hlutabréfa að virði 125 milljóna dala Tilboð Reita í uppbyggingu hjúkrunarheimilis valið Ekki sést til lands í deilunni sem hefur haft áhrif á yfir sjö þúsund farþega Sigurjón nýr framkvæmdastjóri Mediacom Ógnarlöng stefna Samkeppniseftirlitsins kemst að eftir allt saman Hakkarar geti lesið gögn af læstri tölvu á tíu mínútum án lykilorðs Sýndareftirlit ef fylgjast eigi með skemmtistöðum á skrifstofutíma Tillögur ráðherra sagðar rýra virði bankanna um tugi milljarða Sjá meira