Landic riftir samningi við Stones og útilokar ekki lögsókn 19. ágúst 2008 15:23 Skarphéðinn Berg Steinarsson er forstjóri Landic Property.
Landic Property hefur rift samningi sínum við Stones Invests um söluna á danska félaginu Keops Development. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landic. Þar segir enn fremur að Landic hafi á ný tekið við eignarhaldi á Keops Development með það fyrir augum að vernda fjárhagslega hagsmuni sína, verðmæti Keops Development og hagsmuni viðskiptafélaga og viðskiptabanka félagsins. Eins og fram hefur komið ákvað Stones Invest að rifta samningnum við Landic vegna vanefnda og hefur boðað skaðabótamál upp á fjóra milljarða króna. Forsvarsmenn Landic segja hins vegar að félagið hafi uppfyllt allar skyldur sínar samkvæmt kaupsamningi. „Hins vegar hefur Stones Invest meðal annars ekki staðið við þau ákvæði kaupsamningsins um að losa Landic Property undan ábyrgðum sínum og að framfylgja ítarlegri áætlun um sjóðstreymi til að tryggja greiðslur til banka og þróunaraðila verkefna á vegum Keops Development," segir í tilkynningu Landic. Þá segir Landic að Stones hafi tekið tekið til sín endurgreiðslur á virðisaukaskatti sem nemi rúmlega 22 milljónum danskra króna og sem hefðu með réttu átt að renna inn á bankareikning Keops Development. „Keops Development og dótturfélög eru án stjórna þar sem stjórnarmeðlimir skipaðir af Stones Invests hafa sagt af sér sem gerir það að verkum að Keops Development uppfyllir ekki reglur um stjórn félaga," segir enn fremur í tilkynningunni.Enn fremur segjast forsvarsmenn Landic ekki treysta Stones Invest og til þess að koma í veg fyrir frekari rýrnun verðmæta að völdum Stones Invests hafi Landic rift kaupsamningnum og tekið yfir eignarhald og stjórnun á Keops Development. „Framkvæmdarstjórn og stjórn Stones Invests hafa með atferli sínu sýnt mikla vanrækslu gagnvart Landic Property, Keops Development og öllum þeim er hlut eiga að máli. Landic Property áskilur sér rétt til þess að grípa til hvers kyns nauðsynlegra lagalegra aðgerða gagnvart Stones Invest og stjórn fyrirtækisins," segir einnig í tilkynningunni.
Mest lesið „Það eru engin fórnarlömb hér“ Viðskipti innlent Hækka stýrivexti Viðskipti innlent „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Viðskipti innlent Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Viðskipti innlent „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ Viðskipti innlent Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Viðskipti innlent Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu Viðskipti innlent Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Viðskipti innlent Trump frestar boðuðum ofurtollum á Kanada Viðskipti erlent Fleiri fréttir Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ „Biðin er dýrust“ Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Blæs á fullyrðingar um forsendubrest og segir kaupmátt hafa aukist Sjá meira