Viðskipti innlent

Marorka tilnefnd til umhverfisverðlauna

Marorka frá Íslandi er eitt þeirra fyrirtækja sem tilnefnd eru til umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs árið 2008 en Marorka hefur þróað orku- og brennslukerfi fyrir sjávarútveginn.

Alls eru 37 einstaklingar og fyrirtæki tilnefnd. Meðal þeirra eru, eru dekkjaframleiðendurnir Nokian Tires í Finnlandi og danska rakarastofukeðjan Zenz.

Flestar tilnefningar koma frá Svíþjóð þetta árið, eða sextán. Níu koma frá Finnlandi, sjö frá Danmörku, þrjár frá Noregi og ein frá Íslandi og Álandseyjum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×