Viðskipti innlent

Marel selur í Danmörku

Marel hefur náð samkomulagi um sölu á fyrirtæki í Danmörku sem starfrækt er undir merkjum Scanvaegt Norfo til Nienstedt G.m.b.H. Salan kemur til með að hafa lítil áhrif á veltu og hagnað Marel Food Systems fyrir árið 2008. Kaupverð er trúnaðarmál.

,,Við sameiningu Marel og Scanvaegt höfum við haft eflingu þróunarstarfs okkar,sem og arðsemi kjarnastarfseminnar, að leiðarljósi. Sögunarkerfin passa einfaldlega ekki við þær áherslur. Með þessari sölu höfum við stigið mikilvægt skref og getum nú einbeitt okkur enn betur að kjarnastarfsemi fyrirtækisins," segir Sigsteinn Grétarsson, forstjóri Marel ehf. í tilkynningu frá fyrirtækinu.

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×