Viðskipti innlent

Krónan ekki veikari í sjö ár

Gengi krónunnar féll um 3,8% í gær og hefur gengið ekki verið veikara í sjö ár eða síðan Seðlabankinn tók upp verðbólgumarkmið sitt árið 2001.

Fjallað er um málið í Fréttablaðinu í dag og þar kemur meðal annars fram að áhættufælnir fjárfestar bíði átekta eftir aðgerðum stjórnvalda. Er þar meðal annars horft til lántöku til að styrkja gjaldeyrisvaraforða Seðlabankans. Þess má geta að 500 milljarða króna lántökuheimildin sem ríkissjóður fékk í vor hefur nú rýrnað um 322 milljónir evra eða sem svarar hátt í 40 milljarða króna vegna veikingar krónunnar á þessu tímabili.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×