Viðskipti innlent

FL Group má eiga meira en helming í TM

MYND/Anton Brink

Fjármálaeftirlitið hefur samþykkt umsókn FL Group til að fara með virkan eignarhlut í Tryggingamiðstöðinni. Þetta kemur fram í tilkynningu FL Group til Kauphallarinnar.

FL Group hefur þar með heimild eftirlitsins til að fara með meira en helmings eignarhluta í TM. FL Group á 99,1 prósent hlutafjár í TM sem hefur tilheyrt samstæðureikningi FL Group frá og með fjórða ársfjórðungi 2007.

 

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×