Blásum í seglin í kreppunni Breki Logason skrifar 8. júlí 2008 13:52 Ásgeir Margeirsson, forstjóri GGE.
Ásgeir Margeirsson, forstjóri Geysis Green Energy, segir mikið fagnaðarefni að fá nýja hluthafa inn í félagið. Félagið kynnti í hádeginu þá Ólaf Jóhann Ólafsson og bandaríksa fjárfestingafélagið Wolfensohn Company sem nýja hluthafa. Hlutafé félagsins verður aukið um fimm milljarða. „Þeir eru ólíkir en eru báðir gríðarlega mikilvægir fyrir félagið. Það er mikið fagnaðarefni að fá Wolfensohn inn í hluthafahópinn en hann er gríðarlega reyndur og hefur sérstaka sýn á þriðja heims löndin þar sem er mikil þörf fyrir nýtingu á jarðvarmaorku," segir Ásgeir en James Wolfensohn er eigandi félagsins ásamt fleiri aðilum. Wolfensohn er fyrrverandi forstjóri Alþjóðabankans en sonur hans Adam mun setjast í stjórn fyrirtækisins fyrir hönd félagsins, líkt og Vísir greindi frá í morgun. Ólafur Jóhann mun vera stjórnarformaður félagsins og Ásgeir er ánægður mað að hafa fengið hann um borð. „Ólafur er reyndur fjárfestir og það er frábært að fá hann til félagsins. Við lítum á þetta sem mikil tækifæri og hlutafé félagsins er aukið mikið," segir Ásgeir og nefnir þar fimm milljarða króna. „Það er því verið að blása í seglin í kreppunni, fimm milljarðar er mikið á þessum tíma." Aðspurður um hversu lengi viðræður við nýju aðilana hefðu staðið yfir segir Ásgeir: „Við byrjuðum að tala við Ólaf eins og kunnugt er í haust. En þetta fór síðan á flug núna í vor og við náðum að klára þetta."
Tengdar fréttir Ólafur Jóhann líklega kjörinn stjórnarformaður GGE Ólafur Jóhann Ólafsson verður væntanlega kosinn stjórnarformaður í Geysir Green Energy í dag. GGE hefur boðað til hluthafafundar vegna breytinga á stjórn félagsins og innkomu nýrra hluthafa og verður fundurinn á Suðurnesjum í hádeginu. 8. júlí 2008 09:55 Mest lesið Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Viðskipti innlent Fá að kaupa Pei og Motus Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sjá meira
Ólafur Jóhann líklega kjörinn stjórnarformaður GGE Ólafur Jóhann Ólafsson verður væntanlega kosinn stjórnarformaður í Geysir Green Energy í dag. GGE hefur boðað til hluthafafundar vegna breytinga á stjórn félagsins og innkomu nýrra hluthafa og verður fundurinn á Suðurnesjum í hádeginu. 8. júlí 2008 09:55