Viðskipti innlent

TM sett á athugunarlista S&P vegna skuldastöðu FL Group

Alþjóðlega matsfyrirtækið Standard & Poor's hefur ákveðið að setja Tryggingamiðstöðina og dótturfélag þess, Nemi Forsikring ASA í Noregi, á athugunarlista. Ástæða þessa er skuldastaða FL Group sem er móðurfélag Tryggingarmiðstöðvarinnar.

Í tilkynningu Standard & Poor's kemur fram að óvissa varðandi getu FL Group til að standa við lánaskuldbindingar geti haft áhrif á fjárhagslegan styrk TM og Nemi. Standard & Poor's reiknar með ljúka athugun sinni fyrir lok júní eftir að búið er að fara yfir málið með stjórnendum FL Group og TM.

Athugunin gæti leitt til þess að matseinkunn TM og Nemi yrði lækkuð um eitt eða fleiri þrep eins og segir í tilkynningu TM til Kauphallarinnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×