Eriksson: Sýndum að við erum með gott lið Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 10. febrúar 2008 16:44 Alex Ferguson og Sven-Göran Eriksson lögðu blómakransa á miðjan völlinn fyrir leik í dag. Nordic Photos / Getty Images
Sven-Göran Eriksson var fyrst og fremst þakklæti í garð stuðningsmanna sinna í huga eftir sigur sinna manna í Manchester City á grönnum sínum í United í dag. „Fyrst og fremst vil ég þakka stuðningsmönnum City fyrir," sagði hann. „Þeir voru frábærir fyrir leik, á meðan mínútuþögninni stóð, og líka á meðan leiknum stóð eins og þeir eru reyndar alltaf." „Svo vil ég þakka leikmönnunum kærlega fyrir. Þeir unnu frábært verk hér í dag." Eriksson sagði að hann og sínir menn hafi velt því fyrir sér af hverju þeir hafi ekki verið að standa sig jafn vel undanfarnar vikur og þeir gerðu í upphafi leiktíðar. Hann sagði að það hefði því verið ákaflega mikilvægt að standa sig vel í dag. „Ég sagði mönnum í síðustu viku að fyrst og fremst þyrftum við að standa okkur vel í dag. Úrslit leiksins væru í sjálfu sér aukaatriði þó svo að þau eru vitanlega alltaf mikilvæg. Og við svöruðum vel fyrir okkur í dag og sýndum öllum að við erum með gott lið sem getur spilað eins vel og það gerði í dag." Spurður um hvort að það hafi verið erfitt að halda einbeitingunn í dag þar sem mikið gekk á fyrir leikinn í tengslum við það að hálf öld er liðin frá flugslysinu í München. „Ég veit það ekki. Það er erfitt að meta það fyllilega. En ég held þó að um leið og dómarinn hafi flautað leikinn í gang hafi allir leikmenn einbeitt sér fyllilega að leiknum." Hann lýsti einnig yfir ánægju sinni með Benjani sem lék sinn fyrsta leik með City í dag og skoraði sitt fyrsta mark. „Hann var frábær. Benjani er sterkur leikmaður og fljótur og var mjög duglegur þegar United var með boltann. Ég er mjög ánægður með að hafa fengið hann."
Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Þjálfari Hákons grét eftir leik Fótbolti Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni Enski boltinn Fleiri fréttir Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Eiður fann til með Liverpool Eiður með gæsahúð á Anfield Ekki unnið á Anfield í 14 ár Hildur skoraði í sigri Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Brentford bjargaði United frá fallsæti Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Sjáðu mörkin: Varnarmenn United eins og keilur og rautt spjald Martínez Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Carragher biðst afsökunar: „Klaufalegt og rangt“ Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Sjá meira