Saga Capital bregst við veðkalli - Ákvörðun FME kemur verulega á óvart 21. október 2008 17:42
Saga Capital hefur í dag orðið við veðkalli Seðlabanka Íslands frá því í gær og lagt fram viðbótarveð í formi reiðufjár og ríkisskuldabréfa í samræmi við reglur Seðlabankans. Þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum en í henni undrast forstjóri Saga Capital ákvörðun Fjármálaeftirlitsins. „Skuldsetning Saga Capital er lítil og lausafjárstaða góð og því átti bankinn ekki í erfiðleikum með að verða við veðkalli Seðlabankans að þessu sinni," segir í tilkynningunni. Þá segir að veðkall Seðlabankans hafi komið í kjölfar ákvörðunar Fjármálaeftirlitsins um að skuldabréf á hendur gömlu viðskiptabönkunum færu ekki yfir í nýju ríkisbankana. Sú ákvörðun FME kemur Þorvaldi Lúðvík Sigurjónssyni, forstjóra Saga Capital verulega á óvart, enda kúvending á fyrri ákvörðun að hans sögn. ,,Við erum að fara yfir málið og meta hugsanlegar afleiðingar, en Saga Capital er ekki í neinni hættu ef staðið er við gerða samninga. Það er ekki gott að átta sig á regluverkinu þessa dagana en ég treysti því og trúi að eftirlitsaðilar og ráðamenn séu að vinna ötullega að lausnum," segir Þorvaldur Lúðvík.
Mest lesið Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Viðskipti innlent Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Viðskipti innlent Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Viðskipti innlent Verslunin Air lokar í Kringlunni Viðskipti innlent ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Viðskipti erlent Fljúga til Færeyja árið um kring Viðskipti innlent „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Viðskipti innlent Ekkert plan: Mun gervigreindin borga tekjuskatt? Atvinnulíf Fleiri fréttir „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Sjá meira