Björgvin Páll: Bara eitt púslið í góðu liði Henry Birgir Gunnarsson í Peking skrifar 24. ágúst 2008 12:47 Björgvin Páll á fullu í dag. Mynd/Vilhelm
Markvörðurinn ungi Björgvin Páll Gústavsson er svo sannarlega ein af stjörnum þessara Ólympíuleika. Hefur staðið sig hreint frábærlega og búinn að stimpla sig inn í íslenska landsliðið með látum. „Það er stórskringilegt hvernig manni líður. Hundsvekktur að hafa tapað leik en samt stoltur fyrir hönd þjóðarinnar að hafa náð þessari medalíu. Það gerist ekki stærra en að komast í þennan leik," sagði Björgvin Páll sem er einstaklega hógvær maður og vill ekki gera of mikið úr eigin afrekum. „Þetta gekk svona ágætlega til að byrja með en það var svo stígandi í þessu hjá mér. Ég er bara eitt púslið í þessu liði og það þarf heilt lið til að ná svona árangri. Maður byggir ekki gott lið á einstaklingum, það þarf að vera liðsheild," sagði Björgvin Páll en hann er á leið til 1. deildarliðs í Þýskalandi. Sér hann ekkert eftir því núna þar sem fastlega má gera ráð fyrir að stærri lið gefi honum auga eftir frammistöðuna í Peking? „Ég pæli ekkert mikið í því. Ég samdi við lið sem ég taldi vera góðan kost fyrir mig. Ég fékk líka tilboð frá félögum í efstu deild í Þýskalandi en ég taldi mig þurfa að spila sem mest og axla ábyrgð á því sem ég er að gera. Þetta er líka frábær staður til að búa á fyrir mig og kærustuna. Ég verð þarna í að minnsta kosti eitt ár en við sjáum hvað gerist eftir það," sagði silfurmaðurinn Björgvin Páll.
Handbolti Mest lesið Ronaldo í bann hjá Portúgal Fótbolti 16 ára hetja Vals: „Bara sofa vel og skólinn á morgun“ Körfubolti Leikmenn landsliðsins sekir um agabrot Fótbolti Viktor Gísli varð fárveikur á HM Handbolti Bakgarðsáskorunin: „Éta eða vera étinn“ Sport Arnar ætlar ekki að tjá sig og Laddar Liverpool-borgar eru í yfirvinnu Sport Reikna með Kane en vita ekki hvenær Körfubolti Mótherji Eriku kastaði dós í hana Sport Sláttuvél tók á loft í Svíþjóð Sport Króatía - Ísland | Mikilvægur leikur í umspili fyrir HM Fótbolti Fleiri fréttir Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram Sjá meira