Viðskipti innlent

Spron lækkaði mest í Kauphöllinni

Spron hf. lækkaði mest allra félaga í Kauphöll Íslands í dag eða um 2,92%. Alls lækkuðu níu félög en sjö félög hækkuðu. Úrvalsvísitalan lækkaði.

365 hf lækkaði næst mest allra félaga eða um 2,93% og Eik Banki um 2,14%. Þá lækkaði Glitnir um 1,26% og Kaupþing um 1,16%.

Century Aluminum Company hækkaði mest allra félaga eða um 1,41% og stendur gengi félagsins í 5400 stigum. Marel hækkað næst mest um 0,77% og Færeyski bankinn um 0,70%.

Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,70% og stendur nú í rúmum 4.417 stigum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×