Viðskipti innlent

Kópavogsbær tekur 4 milljarða króna lán í evrum

Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri í Kópavogi.
Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri í Kópavogi.

Kópavogsbær hefur tekið 35.000.000 evrur að láni hjá Stokkhólmsútibúi hins franska Dexia Bank. Það samsvarar liðlega fjórum milljörðum íslenskra króna. Umsjón með lántökunni hafði Askar Capital.

Kópavogsbær tekur lánið til að greiða upp eldri lán sem ekki eru eins hagstæð. Askar Capital leitaði tilboða hjá erlendum bönkum vegna lántöku Kópavogsbæjar. Tilboð sem bárust voru metin út frá kjörum og fleiri þáttum. Vextir á láni Dexia Bank eru 65 punktar ofan á EURIBOR.

Askar Capital á í samstarfi við fjölda banka víða um heim. Bankinn veitir stærri fyrirtækjum, stofnunum og sveitarfélögum aðstoð við áhættustýringu og fjármögnun.

„Með tilliti til erfiðra aðstæðna á lánamarkaði er afar ánægjulegt að Kópavogsbær hafi fengið svo hagstætt erlent lán sem raun ber vitni, en það sýnir umfram allt hve staða bæjarsjóðs er sterk og bæjarfélagið í góðu áliti. Með láninu endurfjármögnum við eldri lán, bæði í íslenskri og erlendri mynt, en aukum ekki skuldir bæjarins," segir Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri Kópavogs.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Kópavogsbæ.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×