Hlutfall kvenna í æðstu stöðum stærstu fyrirtækjanna hækkar hægt 4. júní 2008 13:07 Elín Blöndal, forstöðumaður Rannsóknaseturs vinnuréttar við Háskólann á Bifröst.
Hlutfall kvenna í stjórnum æðstu fyrirtækja landsins hefur hækkað frá árinu 2007 en stendur eingöngu í þrettán prósentum sem gerir aðeins 61 af 467 stjórnarsætum samkvæmt upplýsingum frá Rannsóknasetri vinnuréttar við Háskólann á Bifröst. Hækkar þetta hlutfall um fimm prósent frá árinu 2007. Konur eru í þriðjungi stjórnarsæta eða meira í samtals 29 fyrirtækjum en árið 2007 voru fyrirtækin tólf. Hins vegar hefur hlutfall fyrirtækja með enga konu í stjórn lækkað nokkuð og er nú 57 prósent í stað 71 prósent í fyrra. Sé miðað við þau ellefu fyrirtæki sem eru á aðallista Kauphallarinnar eru konur eingöngu tíu prósent af stjórnarmönnum fyrirtækjanna eða sex talsins. Hjá þessum ellefu fyrirtækjum er enginn kona í stjórnarformannssætinu. Konum hefur hins vegar fjölgað nokkuð sem æðstu yfirmenn og stjórnarformenn hundrað stærstu fyrirtækjanna. Sem dæmi eru þrettán konur nú stjórnarformenn í stað þriggja í fyrra og hlutfall æðstu stjórnenda hefur farið úr fjórtán prósentum yfir í nítján. Elín Blöndal, forstöðumaður Rannsóknasetursins, segir greinilegt að fyrirtækin séu að reyna að bæta sig „en að þróunin sé heldur hægfara.“ Elín segir að hlutfallið hérlendis nokkuð lægra en hjá þeim löndum sem Ísland beri sig oft við og nefnir Noreg sérstaklega í því sambandi. Þar á bæ hafi fyrirtækið stungið aðra af varðandi jafnréttismál og sé hlutfall kvenna í stjórnum fyrirtækja í Noregi nú yfir 30 prósent.
Mest lesið Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Viðskipti innlent Fá að kaupa Pei og Motus Viðskipti innlent Fleiri fréttir Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Sjá meira