Toppliðin héldu sínu striki 29. nóvember 2008 18:01 LaKiste Barkus fór fyrir liði Hamars í sigrinum á KR í dag
Topplið Hauka og Hamars unnu leiki sína í Iceland Express deild kvenna í körfubolta í dag þegar fjórir leikir voru á dagskrá. Hamar vann góðan sigur á KR í Hveragerði 76-57 þar sem segja má að langskotin hafi tryggt heimaliðinu sigurinn. Hamar hafði yfir allan leikinn og nýtti liðið 8 af 20 þriggja stiga skotum sínum (40%) á meðan KR hitti aðeins úr 2 af 17 (12%). Að öðru leyti voru liðin nokkuð jöfn í öðrum þáttum tölfræðinnar. LaKiste Barkus skoraði 20 stig, gaf 9 stoðsendingar, hirti 8 fráköst og stal 5 boltum fyrir Hamar, Julia Demirer skoraði 16 stig og hirti 8 fráköst og Íris Ásgeirsdóttir skoraði 14 stig. Hjá KR var Sigrún Ámundadóttir atkvæðamest með 17 stig og 11 fráköst og Guðrún Þorsteinsdóttir setti persónulegt met í vetur með 17 stigum og hitti úr 8 af 11 skotum sínum inni í teig. Hildur Sigurðardóttir var fjarri sínu besta og skoraði 10 stig, en hún hitti aðeins úr 5 af 18 skotum sínum. Haukar halda toppsæti deildarinnar með 16 stig eftir 59-48 sigur á Val í dag. Hamar er í öðru sæti með 14 stig og Keflavík er í þriðja sæti eftir 80-56 sigur á Snæfelli. KR er í fjórða sæti deildarinnar með 10 stig og Grindavík í fimmta með 8 stig eftir nauman 62-61 sigur á Fjölni í dag.
Dominos-deild karla Mest lesið Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Enski boltinn Fyrrverandi landsliðsmaður drukknaði Fótbolti Er hik í vítaspyrnum að láta leikmenn klúðra þeim? Fótbolti Árni Vilhjálms í Stjörnuna Íslenski boltinn Evrópu-Emil: Æðislegt að setja þrjú mörk í Evrópu Fótbolti Tímabilinu lokið hjá Elíasi sem sótti að markametinu Íslenski boltinn María að gera Þóri að afa Fótbolti „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Handbolti Maður dagsins á HM: Slökkti á tölvunni og heldur áfram að þagga niður í fólki Fótbolti „Sérstakur leikur fyrir mig, því ég spila á Englandi og fæddist á Englandi“ Fótbolti Fleiri fréttir Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Hélt hann yrði frá í sex mánuði en byrjar strax í fyrsta leik Liðin senda LeBron James raddskilaboð og reyna að selja sig Bara risaleikir milli jóla og nýárs Frank Aron Booker yfirgefur Val og semur við Álftanes Þungt tap gegn Tyrkjum og Svíar bíða Berglind næststigahæst á EM 16 ára Berglind mögnuð er Ísland náði sögulegum árangri Elvar snýr aftur til Litháens Jón Axel spilar á Kanaríeyjum Patrick Ewing fékk aftur starf á gólfinu í NBA-deildinni Valsmenn fá til sín stigakóng síðasta tímabils „Maður hefur spilað körfubolta lengi“ „Komið með þessa NBA karla, við erum klárir“ Uppgjör: Bretland – Ísland 86-88 | Enn einn dramatískur sigur Íslands og HM draumurinn lifir Íslensku stelpurnar unnu stórkostlegan sigur á Serbum Sixers að blanda sér í baráttuna um LeBron James Prófa nýja körfuboltareglu með einu vítaskoti „Ég er Grindvíkingur en vill bara svo til að ég fór í Keflavík“ Elvar: „Við vorum flatari og skrefinu eftir á“ Uppgjör: Ísland - Ítalía 83-102 | Strákarnir réðu ekki við skotsýningu Ítala Jaylen Brown til Philadelphia 76ers Fengið morðhótanir eftir viðskiptin við Caitlin Clark „Frábært að fá Martin aftur“ Fleiri augu á mér í þessari deild „Ég talaði við fullt af liðum en leist best á Stjörnuna“ Lárus verður aðstoðarþjálfari Grindavíkur Kawhi Leonard aftur til Kanada Tómas Valur færir sig á milli skóla í sama fylki Grindavík valin á kvikmyndahátíð NBA og keppir við Jordan Sjá meira