Áskorun frá formönnum 14. október 2008 13:11
Formenn knattspyrnufélaga í Landsbankadeildinni hafa sent frá sér áskorun til ríkisins, sveitarfélaga og fyrirtækja um að standa þétt við bakið á íþróttahreyfingunni í landinu. Áskorun frá félagi formanna liða í efstu deild karla í knattspyrnu. Formenn félaga sem léku í efstu deild karla í knattspyrnu árið 2008 skora á ríkið, sveitarfélög og fyrirtæki í landinu til að standa þétt að baki íþróttahreyfingunni í landinu á komandi tíð. Nú, sem aldrei fyrr, er brýnt að íþróttahreyfingin hafi afl til þess að sinna mikilvægu og ómissandi hlutverki sínu, sérstaklega gagnvart börnum og unglingum. Við þeim knattspyrnufélögum, sem léku í efstu deild á árinu 2008, blasir að mæta þeirri tekjuskerðingu sem þegar er orðin svo og þeirri tekjuskerðingu sem fyrirsjáanleg er með lækkun rekstrarkostnaðar vegna lækkunar á framlögum styrktaraðila. Í þeim efnum bíður stjórna félaganna erfitt verkefni þar sem treysta verður á skilning leikmanna og þjálfara félaganna á erfiðri stöðu. Mikilvægt er að allir leggi sitt að mörkum til þess að verja hagsmuni knattspyrnuhreyfingarinnar og þá sérstaklega knattspyrnuiðkunar ungs fólks og barna, sem verði ekki látin gjalda erfiðra tíma. Mikilvægt er að forysta Knattspyrnsambands Íslands fari gaumgæfilega yfir með hvaða hætti megi styðja sem best við bakið á knattspyrnufélögunum í landinu og hvaða leiða skuli leita til þess að rekstur félaganna verði fyrir sem minnstum áföllum. M.a. er skorað á stjórn KSÍ að kanna hvort fresta megi tímabundið ákvæðum leyfiskerfis sambandsins þannig að sveitarfélög geti fremur lagt fjármuni í innra starf félaganna en fjárfestingar sem má fresta um sinn. Formenn félaganna skora á stjórn KSÍ, stjórnir knattspyrnfélaga, þjálfara og leikmenn að standa með öllum ráðum vörð um íslenska knattspyrnu þannig að iðkendur innan hreyfingarinnar, fjölskyldur í landinu, sveitarfélög og ríkið geti áfram treyst á mikilvægt hlutverk hennar í samfélaginu. Reykjavík 14. október 2008 F.h. FH, Keflavíkur, Fram, Vals, KR, Fjölnis, Breiðabliks, Þróttar, Grindavíkur, Fylkis, HK og ÍA Gísli Gíslason Jón Rúnar Halldórsson Hörður Antonsson
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Enski boltinn Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Fleiri fréttir FH fær miðvörð aftur heim Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Sjá meira