Útflutningur aldrei mælst meiri 4. júní 2008 18:38
Vöruskipti við útlönd voru óhagstæð um 0,6 ma.kr. í maí samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofunnar. Hallinn er töluvert minni en í apríl en þá var hann 7,3 ma.kr. Alls nam útflutningur tæpum 39,3 mö.kr. í mánuðinum en innflutningur nam 39,9 mö.kr. Þetta kemur fram í Vegvísi Landsbankans í dag. Þar segir ennfremur: „Bata vöruskiptahallans má rekja til þess að útflutningur hefur aldrei mælst meiri. Að öllum líkindum er álútflutningur að aukast töluvert en álver Fjarðaáls á Reyðarfirði náði fullum afköstum um miðjan apríl. Á sama tíma er innflutningur þó enn mjög hár í sögulegu samhengi. Ekki liggur fyrir sundurliðun á inn- og útflutningi og því erfitt að rýna nánar í tölurnar að sinni en óreglulegir liðir gætu haft áhrif á niðurstöðu mánaðarins. Hagstofan birtir endanlegar tölur um vöruskiptin í maí ásamt sundurliðun þann 30.júní. Veiking krónunnar undanfarna mánuði ætti að öðru óbreyttu að leiða til minni innflutnings en þau áhrif koma fram með nokkurri töf. Til að byrja með gætir verðáhrifanna eingöngu og því eykst innflutningur í krónum talið eftir lækkun gengisins. Við eigum von á að innflutningur dragist saman þegar líður á árið en þá mun gengisveiking krónunnar koma til með að hafa jákvæð áhrif á vöruskiptahallann. Að okkar mati er jákvætt að sjá svo mikinn bata í utanríkisviðskiptum í maí en við væntum þess að afgangur myndist á vöruskiptum á næstu mánuðum.“
Mest lesið Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Viðskipti innlent Fá að kaupa Pei og Motus Viðskipti innlent Fleiri fréttir Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Sjá meira