Verðbólga verður töluverð fram á næsta ár 3. júlí 2008 11:20 Davíð Oddsson seðlabankastjóri.
Helstu ástæður þess að Seðlabankinn ákveður að halda stýrivöxtum óbreyttum er sú að verðbólga jókst verulega í kjölfar gengis lækkunar krónunnar á fyrstu mánuðum ársins og er nú meiri en bankinn spáði í apríl síðastliðinn. Þetta kemur fram í stefnuyfirlýsingu Seðlabanka Íslands, sem Davíð Oddsson seðlabankastjóri kynnti í morgun. Seðlabankinn telur að verðbólga verði töluverð fram á næsta ár en hjaðni síðan hratt. Bankinn segir að verðbólgumarkmiðið muni nást á þeim tíma sem spáð var í apríl með því að vextir verði lækkaðir síðar en áður hafði verið ráðgert.Horfur á töluverðum samdrætti Seðlabankinn segir að horfur séu á töluverðum samdrætti landsframleiðslu á næstu tveimur árum eftir öflugan hagvöxt um langt skeið. Sá vöxtur hafi ekki alltaf sjálfbær eins og mikill viðskiptahalli vitni um. Nokkur samdráttur sé því óumflýjanlegur til þess að jafnvægi náist á ný. Bankinn segir að minnkandi umsvif í þjóðarbúskapnum munu auðvelda Seðlabankanum að koma böndum á verðbólgu en samdráttur muni á hinn bóginn verða íþyngjandi fyrir marga, ekki síst þá sem skuldsettastir eru.Mikilvægt að bankinn haldi stefnu sinni Þá segir í stefnuyfirlýsingunni að samkvæmt lögum beri Seðlabankanum að stuðla að stöðugu verðlagi. Raddir heyrist um að tímabært sé að taka ríkara tillit til þeirra erfiðleika sem lánsfjárkreppa valdi atvinnulífi nú og víkja öðrum markmiðum til hliðar um lengri eða skemmri tíma. Slíkar aðgerðir til þess að örva atvinnulífið nú hefðu öfug áhrif því þær myndu leiða til lægra gengis, meiri verðbólgu og hærri verðbólguvæntinga og á endanum til meiri samdráttar í þjóðarbúskapnum. Þær myndu því veikja efnahag skuldsettra heimila og fyrirtækja og grafa undan fjármálalegum stöðugleika. Á komandi mánuðum sé mikilvægt að auka traust á fjármálakerfið og tryggja virkni markaða.Mikilvægt að byggja upp traust „Peningastefnan snýst um traust sem tekur langan tíma að byggja upp og festa í sessi. Miklu varðar að hvika hvergi á meðan ágjöfin er sem mest og halda fast við þau markmið sem sett hafa verið. Það mun bankinn gera svo hann geti af öryggi hafi ð og fylgt vaxtalækkunarferli þegar þau skilyrði hafa skapast. Brýnasta viðfangsefnið er enn sem fyrr að ná tökum á verðbólgu og koma í veg fyrir að aukning hennar að undanförnu valdi víxláhrifum launa, verðlags og gengis. Vissulega mun draga nokkuð úr kaupmætti á aðlögunarskeiði en það mun standa skemur en ella ef tekið er á framangreindum þáttum af festu," segir í stefnuyfirlýsingunni.
Mest lesið Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Viðskipti innlent „Það eru engin fórnarlömb hér“ Viðskipti innlent „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Viðskipti innlent „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ Viðskipti innlent Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Viðskipti innlent Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar Viðskipti innlent Hækka stýrivexti Viðskipti innlent Loka á umdeilda veðmálasíðu í Danmörku Viðskipti erlent Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ „Biðin er dýrust“ Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Sjá meira