Viðskipti innlent

Gengi 365 hf. hækkaði um 4,5%

Gengi í 365 hf. hækkaði um 4,5% í fyrstu viðskiptum dagsins í kauphöllinni. Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 0,2% og stendur nú í 4.480 stigum.

Auk 365 hefur mesta hækkun í morgun orðið hjá SPRON eða 1,8% og Kaupþing hefur hækkað um 0,9%.

Mesta lækkun hefur orðið hjá Atorku eða um 0,6%, Bakkavör hefur lækkað um 0,5% og Landsbankinn um 0,4%.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×