Dagur: Afar spennandi félag Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 1. desember 2008 18:46 Dagur í Vínarborg er hann tók við austurríska landsliðinu. Mynd/HAGENpress/Leo Hagen
Dagur Sigurðsson mun á næstunni skrifa undir tveggja ára samning við þýska úrvalsdeildarfélagið Füchse Berlin. Þetta staðfesti hann í samtali við Vísi í dag. Fyrr í dag sagði Bob Hanning, framkvæmdarstjóri félagsins, við Vísi að þeir hefðu sammælst um þetta og handsalað samninginn. Hanning sagði að hann ætti von á að Dagur yrði lengi hjá félaginu og myndi jafnvel skuldbinda sig til næstu sex ára en Dagur sagði að skrifað yrði undir tveggja ára samning fyrst um sinn. Dagur kom til Íslands vorið 2007 eftir ellefu ára veru í atvinnumennsku í Þýskalandi, Japan og síðustu fjögur árin sem spilandi þjálfari Bregenz í Austurríki. Hann stýrði liðinu til austurríska meistaratitilsins öll fjögur árin. „Ég er tiltölulega nýfluttur heim og var ekkert á leiðinni út aftur. En svo kom þetta upp og mér fannst það virkilega spennandi að taka við þessu liði," sagði Dagur. „Það var mikill áhugi af þeirra hendi og ég ákvað því að kýla á þetta." Hann hefur starfað sem framkvæmdarstjóri Vals síðan hann kom heim en fyrr á árinu hóf hann einnig störf sem landsliðsþjálfari Austurríkis. Hann mun halda því starfi áfram fram yfir EM sem fer fram í Austurríki árið 2010. Dagur sagðist aðspurður ekki hafa tekið starfinu vegna efnahagsástandsins hér á landi. „Það hafði engin úrslitaáhrif á mína ákvörðun. Valsmenn skilja mína afstöðu vel og þetta kemur ekki á slæmum tíma hjá þeim þar sem félagið er að skera niður kostnað. Ég mun þó áfram sinna þessu starfi þar til ég fer út." Þetta er þó ekki í fyrsta sinn sem lið frá Þýskalandi sýnir Degi áhuga en hann hefur hingað til ekki viljað snúa aftur til Þýskalands þar sem hann lék árum áður. „Ég hafði ekki áhuga á því að fara í neðrideildarliðin. Ef svo hefði ég gert það strax eftir Bregenz. Ég átti reyndar alls ekki von á því að fá tilboð frá þetta stóru félagi strax, kannski frekar eftir EM 2010." Hann segist ætla að framkvæma einhverjar breytingar á liðinu þegar hann hefur störf. „Ég ætla að reyna að fá skandinavískt yfirbragð á þetta lið enda þarf að styrkja það og stoppa í nokkur göt. Ég kem þó til með að þétta hópinn og byggja á þeim kjarna sem er fyrir hjá félaginu." Uppgangur Füchse Berlin hefur verið gríðarlega mikill undanfarin ár en félagið var nánast gjaldþrota fyrir þremur og hálfu ári og ekki með keppnisleyfi. „Uppgangurinn er það sem flestir hafa verið að fylgjast með hjá þessu félagi. Fyrir nokkrum árum var það næstum fallið úr B-deildinni og um 200 manns komu að meðaltali á heimaleiki liðsins." „Á síðustu leiktíð fékk liðið að meðaltali 5-6 þúsund áhorfendur á heimaleiki sína. Þar að auki spilaði liðið gegn Lemgo í glænýrri höll í haust, O2-höllinni sem tekur 15 þúsund manns í sæti. Það var uppselt á þann leik. Það er áætlað að spila tvo leiki til viðbótar í þeirri höll á leiktíðinni, gegn Kiel og Magdeburg." „Berlín á meistaralið bæði í hokkí og körfubolta sem spila í O2-höllinni. Þá gengur Herthu Berlín einnig vel í fótboltanum. Það er líka stefnt að því að gera Berlín að höfuðborg handboltans í Þýskalandi."
Tengdar fréttir Füchse Berlin: Dagur verður næsti þjálfari okkar Dagur Sigurðsson mun af öllum líkindum verða næsti þjálfari þýska úrvalsdeildarfélagsins Füchse Berlin en þetta sagði framkvæmdarstjóri félagsins í samtali við Vísi í dag. 1. desember 2008 15:47 Mest lesið Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport Börsungar léku sér að Aston Villa Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti „Þýðir ekkert að vera vera horfa upp á toppinn á Everest“ Sport Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport Fleiri fréttir Sigurganga Hauka heldur áfram Hvert sæti skipað í Laugardalshöll Teitur kallaður inn í landsliðið vegna meiðsla Einmana á botninum í hléinu Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Atli Steinn kláraði Stjörnuna Íslendingarnir með sextíu prósent markanna Yfirburðir Hauka sem tapa ekki leik „Sóknarleikurinn vel smurður“ Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Fimmti sigur Eyjakvenna í röð Fjórði sigur Valskvenna í röð Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Arnar með fleiri á tánum: „Hefðum alveg getað verið heppnari“ Samningur Arnars að renna út: „Vonandi ekki síðasta mótið“ Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Svona var EM-fundur Arnars „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ „Stemning í liðinu og traust“ Uppgjörið: Fram - Haukar 26-29 | Haukar enn með fullt hús Magnús Dagur tryggði fyrsta útisigur Eyjamanna síðan í september Ólíkt gengi hjá Íslendingaliðum í sama riðli í Meistaradeildinni Þessar 35 mega spila á EM: Átta hafa ekki spilað landsleik Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Sjá meira
Füchse Berlin: Dagur verður næsti þjálfari okkar Dagur Sigurðsson mun af öllum líkindum verða næsti þjálfari þýska úrvalsdeildarfélagsins Füchse Berlin en þetta sagði framkvæmdarstjóri félagsins í samtali við Vísi í dag. 1. desember 2008 15:47