Viðskipti innlent

Byr sparisjóður verður hf

MYND/Pjetur

Stofnfjáreigendur Byrs samþykkti á fundi sínum fyrr í dag að veita stjórn heimild til að breyta rekstrarformi sparisjóðsins úr sjálfseignarstofnun (stofnfjársjóði) í hlutafélag. Heimildin var samþykkt með yfirgnæfandi meirihluta atkvæða samkvæmt tilkynningu.

„Fundurinn, sem hófst á Hótel Nordica kl. 17, var fjölmennur, en hann sóttu um 400 manns. Aðeins eitt mál var á dagskrá eða tillaga stjórnar um að rekstrarformi sparisjóðsins verði breytt í hlutafélag í samræmi við VIII. kafla laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki.

Aðdragandi málsins er sá, að á aðalfundi Byrs sem fram fór þann 9. apríl sl., var samþykkt að kannaðar yrðu mögulegar breytingar á rekstrarformi Byrs í hlutafélag. Stjórn setti í framhaldi af því á fót vinnuhóp, sem var falið að taka út helstu kosti og galla þess, en hann skipuðu Gunnar Árnason, starfsmaður Byrs, Sigurður Jónsson, lögg. endurskoðandi og Jón Kr. Sólnes, hrl. og formaður hópsins.

Í skýrslu vinnuhópsins til stjórnar Byrs, var komist að þeirri niðurstöðu að fleiri rök mæli með hlutafjárvæðingu, en gegn. Er m.a. á það bent að auk þess sem hlutafélög séu mun algengara rekstrarform um heim allan en það sem sparisjóðir byggja á, lúti þau almennt gagnsæjum og auðskildum stjórnvaldsreglum. Viðskipti með hlutafé sé m.a. af þessum sökum hagfelldari en með stofnfé og almennt séð standi hlutfélögum fjármögnun á hagstæðri kjörum til boða en sparisjóðum.

Lögum samkvæmt breytist rekstrarform sparisjóðs með samruna hans og hlutafélags, sem er stofnað í þeim tilgangi að yfirtaka rekstur sjóðsins. Síðasti liður ferlisins felst í svo samþykki Fjármálaeftirlitsins á ákvörðun stofnfjáreigenda um breytt rekstrarform og mun stjórn Byrs fara þess á leit við FME á næstunni."

Með þessari breytingu má leiða á því líkum að Byr muni fljótlega sameinasta einhverjum öðrum banka á Íslandi en ítrekað hafa borist fregnir af því að Byr muni sameinast Glitni.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×