Stoðir kaupir hlutinn í Baugi á 25 milljarða kr. 4. júlí 2008 08:14
Stoðir (áður FL Group) hafa samið um kaup á kjölfestuhlut í Baugi Group. Seljandi hlutarins er Styrkur Invest sem er í meirihlutaeigu Gaums. Kaupverð hlutarins er 25 milljarðar króna. Í tilkynningu um málið segir að greitt verði fyrir hlutinn með hlutabréfum í Stoðum sem verður í nýjum hlutaflokki B bréfa sem bera ekki atkvæðisrétt. Viðskiptin eru gerð með fyrirvara um áreiðanleikakönnun og samþykki hluthafafundar Stoða sem auglýstur verður síðar. Eftir viðskiptin munu Stoðir fara með tæplega 40% virkan eignarhlut í Baugi auk þess að eiga eignarhlut í B hlutaflokki félagsins sem ekki veitir atkvæðisrétt. Aðrir hluthafar í Baugi eru Kevin Stanford, Don McCarthy, Bague SA og starfsmenn félagsins. Stærsti hluthafi Stoða er Styrkur Invest. Baugur hefur fyrir þessi viðskipti lokið við sölu allra eigna á Íslandi og mun eftirleiðis leggja alfarið áherslu á fjárfestingar í smásöluverslun í Bretlandi, Norðurlöndum og Bandaríkjunum. Meginhluti starfsemi Baugs verður staðsettur í London. Meðal stærstu fjárfestinga Baugs eru Iceland, House of Fraser, Mosaic Fashions, Hamley´s, Whistles, Goldsmiths, Magasin du Nord, Illum og Saks. Með kaupum á eignarhlut í Baugi eykst eigið fé Stoða um 25 milljarða króna en nánari upplýsingar um efnahag Stoða verða birtar í uppgjöri félagins fyrir fyrstu sex mánuði ársins 2008 sem kynnt verður þann 29. ágúst nk. Í framhaldi af viðskiptunum er stefnt að samnýtingu ákveðinna rekstrarþátta í starfsemi Stoða og Baugs og er m.a. gert ráð fyrir að starfsemi félaganna í London verði færð undir sama þak í húsakynnum Baugs. „Kaupin á kjölfestuhlut í Baugi Group eru mikilvægt skref fyrir félagið og til þess fallin að styrkja það verulega. Baugur hefur byggt upp sterka stöðu í mörgum þekktum erlendum vörumerkjum í smásöluverslun. Rekstur þessara félaga gengur vel og við höfum mikla trú á framtíð Baugs," segir Jón Sigurðsson, forstjóri Stoða. "Hlutafjáraukning sem á sér stað samhliða þessum viðskiptum styrkir einnig eiginfjárgrunn félagsins verulega en það hefur einmitt verið meginviðfangsefni okkar frá því að endurskipulagning félagsins hófst í desember 2007. Okkur hefur þegar orðið vel ágengt og sjáum batamerki í rekstri félagsins þrátt fyrir mikla ágjöf á fjármálamörkuðum. Við munum halda áfram uppbyggingarstarfinu - og nú undir nýjum merkjum og nafni. Stoðir ríma vel við mikilvægasta hlutverk okkar, sem er að styðja og efla kjölfestufjárfestingar okkar í Glitni, TM, Landic Property og Baugi."
Mest lesið Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Viðskipti innlent Fá að kaupa Pei og Motus Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sjá meira