Tap Stoða 11,6 milljarðar króna Óli Kristján Ármannsson skrifar 30. ágúst 2008 06:00 í ársbyrjun Jón Ásgeir Jóhannesson stjórnarformaður og Jón Sigurðsson forstjóri sjást hér á kynningu ársuppgjörs FL Group (nú Stoða) í byrjun ársins. Fréttablaðið/Anton
Stoðir (áður FL Group) töpuðu 11,6 milljörðum króna á öðrum ársfjórðungi. Á sama tíma í fyrra hagnaðist félagið um rétt rúma 8 milljarða króna. Heldur hefur dregið úr tapi félagsins milli ársfjórðunga en á fyrsta fjórðungi nam tap Stoða 47,8 milljörðum króna. Í tilkynningu félagsins kemur fram að tapið nú skýrist einkum af fjármagnskostnaði og af lækkun á markaðsverðmæti eignarhlutar Stoða í Glitni banka. Tap vegna 32 prósenta hlutar félagsins í bankanum nemur 8,9 milljörðum króna. Vaxtagjöld nema 8,5 milljörðum. Aðrar kjarnafjárfestingar Stoða eru í Baugi Group, Tryggingamiðstöðinni (TM) og Landic Property. TM og Landic skiluðu einnig uppgjöri í gær. Á fyrstu sex mánuðum ársins tapaði TM 130 milljónum króna, en Landic hagnaðist um 435 milljónir. Fram kemur að hagnaður af áframhaldandi starfsemi Landic á fyrri helmingi ársins nemi 5,4 milljörðum kóna. FL Group var tekið af markaði í júníbyrjun og nafni þess breytt í Stoðir. Haft er eftir Jóni Sigurðssyni, forstjóra félagsins, að nýtt nafn sé rökrétt þar sem megnihlutverk Stoða sé að efla og styðja við kjarnafjárfestingar félagsins og veita kjölfestu til framtíðar.
Mest lesið Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Viðskipti innlent Verðbólga hjaðnar Viðskipti innlent Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Viðskipti erlent Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur Viðskipti innlent Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Viðskipti innlent Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Viðskipti innlent Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Viðskipti innlent Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Viðskipti innlent Lúxusbílaframleiðandi bauð íslenskum bræðrum í draumaferð til Kína Samstarf Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kjötborgarbræður setja húsnæðið á sölu Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Verðbólga hjaðnar Afkoma í samræmi við áætlanir hjá Símanum Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Sjá meira