Kaupþing og SPRON sameinast 1. júlí 2008 16:57 Hreiðar Már Sigurðsson, forstjóri Kaupþings.
Kaupþing og SPRON hafa ákveðið að sameinast eftir nokkurra vikna viðræður þar um. Samningaviðræður milli þeirra hófust í apríl á þessu ári en þá var gert ráð fyrir að niðurstöðu væri að vænta innan fjögurra vikna. Mánuði síðar kom síðan tilkynning frá Kaupþingi um að ákveðið hefði verið að framlengja samningaviðræðurnar. Þá sagði að viðræður gengju vel og væri niðurstöðu þeirra að vænta eins skjótt og kostur væri. Sameining félaganna er háð samþykki hluthafafundar SPRON, stjórnar Kaupþings, Fjármálaeftirlitsins, Samkeppniseftirlitsins og lánveitenda félaganna. Kaupverðið miðast við lokagengi SPRON í gær með 15 prósenta álagi sem er rétt tæplega 3,8. Markaðsvirði Spron í viðskiptunum er því rétt rúmir 19 milljarðar. Hluthafar í SPRON fá greitt með bréfum í Kaupþingi og Existu. Endurgjaldið verður samsett með þeim hætti að 60 prósent þess verða í formi hluta í Exista hf. og 40 prósent í formi hluta í Kaupþingi. Áætlað er að hluthafafundur í SPRON verði haldinn í byrjun ágúst. Sameinað félag mun taka við rekstri, eignum og skuldum, svo og réttindum og skyldum SPRON, þegar öll skilyrði samrunans hafa verið uppfyllt, segir í tilkynningu til Kauphallarinnar. Tilkynnt var um samrunann til Kauphallarinnar í dag.
Mest lesið Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Viðskipti innlent „Það eru engin fórnarlömb hér“ Viðskipti innlent „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Viðskipti innlent „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ Viðskipti innlent Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Viðskipti innlent Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar Viðskipti innlent Hækka stýrivexti Viðskipti innlent Loka á umdeilda veðmálasíðu í Danmörku Viðskipti erlent Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ „Biðin er dýrust“ Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Sjá meira