Árvakur og 365 ræddu samstarf að frumkvæði banka Andri Ólafsson skrifar 5. september 2008 16:11 Þór Sigfússon, stjórnarformaður Árvakurs
Bæði Þór Sigfússon, stjórnarformaður Árvakurs, og Ari Edwald, forstjóri 365 staðfesta að þreifingar hafi verið á milli fjölmiðlafélaganna um samstarf. Árvakur er útgáfufélag fjölmiðla á borð við Morgunblaðið, Mbl.is og 24 stundir. 365 á Fréttablaðið, Stöð 2 og Vísi.is. Að sögn Þórs áttu fulltrúar fjármálastofnanna frumkvæðið að þessum þreifingum en bæði hann og Ari gefa lítið fyrir árangurinn af þessum viðræðum sem báðir ítreka að hafi verið afar óformlegar. Samkvæmt heimildum Vísis hafa viðræður Árvakurs og 365 fyrst og fremst snúið að útgáfum fríblaðanna tveggja, 24 stunda og Fréttablaðsins, sem félögin hafa gefið út. Auglýsingatekjur blaðanna beggja hafa dregist töluvert saman á þessu ári og hafa eigendur þeirra leitað leiða til þess að draga úr kostnaði við dreifingu og prentun sem er langstærsti kostnaðarliður útgáfunnar. Aðspurður hvort komið hafi til tals að Árvakur kaupi Fréttablaðið af 365 sagði Ari að það væri eitthvað sem kæmi ekki til greina. "Ég hef heyrt tal í þá veru að þreifingarnar gangi út á að Árvakur kaupi Fréttablaðið en sú umræða er á misskilningi byggð. Fréttablaðið er öflugasti prentmiðill landsins... og við höfum ekkert verið að velta því fyrir okkur að hætta afskiptum af því,"segir Ari „Þetta voru þreifingar um samstarf og form á því. Það eru ýmsir möguleikar ef til samtarfs kæmi. En allar slíkar vangaveltur hafi ekki leitt til neinnar niðurstöðu," segir Ari Edwald. Hann vill hins vegar lítið gefa upp um eðli þessara viðræðna. Hvort, hvenær og hversu oft hann hitti forsvarsmenn Árvakurs. Sama á við um Þór Sigfússon. Þór segir að þótt engar viðræður séu í gangi á þessum tímapunkti vilji hann ekki slá þann möguleika út af borðinu að það verði í framtíðinni. „Það eru ýmsir möguleikar á samstarfi sem við viljum síst slá út af borðinu," segir hann.
Mest lesið Hækka stýrivexti Viðskipti innlent „Það eru engin fórnarlömb hér“ Viðskipti innlent Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Viðskipti innlent Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Viðskipti innlent Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Viðskipti innlent Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu Viðskipti innlent Trump frestar boðuðum ofurtollum á Kanada Viðskipti erlent Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Viðskipti innlent Árni skattakóngur annað árið í röð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hækkunin kosti lánþega tugi þúsunda á ári Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ „Biðin er dýrust“ Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Blæs á fullyrðingar um forsendubrest og segir kaupmátt hafa aukist Auglýsa grimmt en vörurnar berast ekki: Myndir þekktra Íslendinga notaðar Skúli Hrafn tekur við Íslandssjóðum Sjá meira