Var hissa eins og allir aðrir Elvar Geir Magnússon skrifar 19. ágúst 2008 18:01 Jakob, Benedikt og Jón Arnór. Mynd/Heimasíða KR
KR-ingar fengu ekki bara besta körfuboltamann landsins í dag heldur ákvað besti leikstjórnandi landsins, Jakob Örn Sigurðarson, að stjórna umferðinni hjá KR-liðinu í vetur. Jakob segir þá ákvörðun sína að koma heim hafi verið tekna áður en að hann heyrði af því hvað Jón Arnór Stefánsson ætlaði sér að gera. „Ég var hissa eins og allir aðrir að heyra af því að Jón Arnór ætlaði að spila með KR," segir Jakob. Jakob lék í Ungverjalandi í fyrra og hefur þar á undan verið að spila í Þýskalandi og á Spáni auk þess sem hann lék í fjögur ár með Birmingham Southern háskólanum. „Þetta er mjög spennandi vetur og manni hlakkar rosalega til að fara að spila aftur með KR. Þetta snérist aðallega um tilhlökkun og löngun um að koma aftur heim í eitt ár. Ég vildi koma aftur í KR og vera hjá fjölskyldu og vinum," segir Jakob. „Ég er búin að vera í í átta ár úti og þetta er orðinn mjög langur tími. Það voru alveg nokkur tilboð í gangi og þetta var því eitthvað sem ég ákvað að gera fyrir sjálfan mig," segir Jakob en áður en hann fer á fullt með KR þá er landsliðið á leiðinni á æfingamót á Írlandi og svo taka við leikir í Evrópukeppninni. „Það fer að styttast í að við getum byrjað inn á með heilt KR-lið í landsliðinu," segir Jakob í léttum tón en hann segist ekki þurfa langan tíma á að læra að spila með Jóni Arnóri. „Við spiluðum saman þegar við vorum yngri og höfum líka alltaf spilað saman á sumrin. Við þekkjumst því vel. Það er frábært að fá að spila með Jóni Arnóri í KR. Hann er frábær leikmaður og það verður mjög gaman að spila með honum og öllu hinum gömlu félögunum," segir Jakob.
Dominos-deild karla Tengdar fréttir „Ætlaði ekki að trúa því að Jón Arnór vildi koma í KR“ Benedikt Guðmundsson þjálfari körfuknattleiksliðs KR segir að bæði Jón Arnór Stefánsson og Jakob Sigurðarson hafi viljað koma heim og spila eitt tímabil með sínu gamla félagi. Þeir hafa lengi verið atvinnumenn erlendis en semja nú við sitt gamla félag til eins árs. Benedikt býst við fleiri kvenmönnum á leiki KR í vetur. 19. ágúst 2008 14:51 Mest lesið Norska landsliðið flúði hótelið sitt Fótbolti Lionel Messi: „Ég var mjög reiður“ Fótbolti Þingkonan ræðst aftur á Mbappé og eftirmyndir af honum brenndar Fótbolti Bara einn í flugvélinni heim af HM Sport Haaland orðinn stærri en Manchester City Enski boltinn Úkraínsk tennisstjarna gagnrýnir ákvörðun IOC: „Þetta er hræðilegt“ Sport Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Enski boltinn Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Enski boltinn Henderson tjáir sig í fyrsta sinn eftir fallið vandræðalega Fótbolti Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Enski boltinn Fleiri fréttir Frank Aron Booker yfirgefur Val og semur við Álftanes Þungt tap gegn Tyrkjum og Svíar bíða Berglind næststigahæst á EM 16 ára Berglind mögnuð er Ísland náði sögulegum árangri Elvar snýr aftur til Litháens Jón Axel spilar á Kanaríeyjum Patrick Ewing fékk aftur starf á gólfinu í NBA-deildinni Valsmenn fá til sín stigakóng síðasta tímabils „Maður hefur spilað körfubolta lengi“ „Komið með þessa NBA karla, við erum klárir“ Uppgjör: Bretland – Ísland 86-88 | Enn einn dramatískur sigur Íslands og HM draumurinn lifir Íslensku stelpurnar unnu stórkostlegan sigur á Serbum Sixers að blanda sér í baráttuna um LeBron James Prófa nýja körfuboltareglu með einu vítaskoti „Ég er Grindvíkingur en vill bara svo til að ég fór í Keflavík“ Elvar: „Við vorum flatari og skrefinu eftir á“ Uppgjör: Ísland - Ítalía 83-102 | Strákarnir réðu ekki við skotsýningu Ítala Jaylen Brown til Philadelphia 76ers Fengið morðhótanir eftir viðskiptin við Caitlin Clark „Frábært að fá Martin aftur“ Fleiri augu á mér í þessari deild „Ég talaði við fullt af liðum en leist best á Stjörnuna“ Lárus verður aðstoðarþjálfari Grindavíkur Kawhi Leonard aftur til Kanada Tómas Valur færir sig á milli skóla í sama fylki Grindavík valin á kvikmyndahátíð NBA og keppir við Jordan „Nýi skólinn“ og Norðurlandablæti í Bilbao Ja Morant skipt til Trail Blazers LeBron James yfirgefur Lakers Semja við leikmanninn sem var með 34 stig að meðaltali á móti þeim í fyrra Sjá meira
„Ætlaði ekki að trúa því að Jón Arnór vildi koma í KR“ Benedikt Guðmundsson þjálfari körfuknattleiksliðs KR segir að bæði Jón Arnór Stefánsson og Jakob Sigurðarson hafi viljað koma heim og spila eitt tímabil með sínu gamla félagi. Þeir hafa lengi verið atvinnumenn erlendis en semja nú við sitt gamla félag til eins árs. Benedikt býst við fleiri kvenmönnum á leiki KR í vetur. 19. ágúst 2008 14:51