Viðskipti innlent

Færeyski bankinn hækkaði mest

Færeyski bankinn hækkaði mest í Kauphöllinni í dag. Frá opnun markaðar í morgun og þar til hann lokaði nú seinni partinn hækkaði félagið um 1,82% og er gengi bankans nú 139,5.

Century Aluminum hækkaði um 1,09% og Atlantic Petroleum um 1,01%. Þá hækkaði Alfesca um 0,45% og Landsbanki Íslands um 0,38%.

Icelandic Group hf. Lækkaði mest allra félaga eða um 3,17% og Straumur Burðarás um 1,52%. Þá lækkaði Spron um 1,51%.

Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,85% og er nú tæplega 4.808 stig.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×