Bankarnir að komast yfir fyrsta hjallann í fjármálakreppunni 12. ágúst 2008 17:07 Ásgeir Jónsson, forstöðumaður greiningardeildar Kaupþings. MYND/Anton
Skuldatryggingarálag íslensku bankanna þriggja hefur lækkað töluvert í dag eða um 40-100 punkta eftir því sem segir í hálffimmfréttum Kaupþings. „Hér skyldi að vísu haft í huga að markaðurinn með skuldatryggingar bankanna hefur verið nánast því dauður í sumar þar sem viðskiptin eru lítil sem engin. Lækkandi álag segir því kannski fyrst og fremst að einhverjir hafa kosið að eiga viðskipti á markaðinum fremur en nokkuð annað," segir greiningardeild Kaupþings.Að mati Greiningardeildar má þó rekja lækkandi skuldatryggingarálag til þess að uppgjör bankanna þriggja hafi aukið traust á þeim í augum erlendra skuldabréfafjárfesta. „Raunar er það svo að íslensku bankarnir aldrei fengið eins jákvæða umfjöllun eftir uppgjör sín hjá erlendum skuldabréfagreinendum (credit analysts) eins og nú," segir í hálffimmfréttunum.Greiningardeild Kaupþings segir að staðan nú bendi til þess að íslensku bankarnir séu nálægt því að komast yfir fyrsta hjallann í núverandi fjármálakreppu - að sanna það að þeir geti haldið fullum seljanleika þrátt fyrir að markaðir fyrir útgáfu ótryggðra skuldabréfa séu lokaðir og Seðlabanki Íslands geti ekki þjónað sem lánveitandi til þrautarvara þegar kemur að erlendri fjármögnun.„Og þá um leið hrint frá öllum bollaleggingum um að íslenska fjármalakerfið geti lagst á hliðina í bankaáhlaupi. Næsti hjalli sem bankarnir verða að komast yfir er að sýna fram að rekstur þeirra geti staðist fremur harða lendingu íslenska hagkerfisins á næsta vetri," segir í hálffimmfréttunum.
Mest lesið „Það eru engin fórnarlömb hér“ Viðskipti innlent Hækka stýrivexti Viðskipti innlent „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Viðskipti innlent Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Viðskipti innlent „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ Viðskipti innlent Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Viðskipti innlent Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu Viðskipti innlent Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Viðskipti innlent Trump frestar boðuðum ofurtollum á Kanada Viðskipti erlent Fleiri fréttir Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ „Biðin er dýrust“ Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Blæs á fullyrðingar um forsendubrest og segir kaupmátt hafa aukist Sjá meira