Glitnir hirðir bestu bitana á meðan að starfsmönnum MEST blæðir Jón Hákon Halldórsson skrifar 30. júlí 2008 16:18 Lárus Welding forstjóri Glitnis.
Þeir starfsmenn sem sagt var upp hjá MEST og fá ekki borguð laun um þessa mánaðarmót þurfa væntanlega að fá fyrirgreiðslu í banka til að takast á við skyldur sínar, að sögn Elíasar Magnússonar, forstöðumanns Kjarasviðs VR. Eins og kom fram í fréttum fyrr í mánuðinum hirti Glitnir, sem var stærsti kröfuhafi hjá MEST, til sín steypu- og helluframleiðsluhluta MEST. Sá hluti fyrirtækisins Mest, sem nýverið hlaut nafnið Tæki, tól og byggingavörur ehf verður hins vegar tekið til gjaldþrotaskipta, að ósk stjórnenda fyrirtækisins. Hátt í 60 manns störfuðu hjá fyrirtækinu og var þeim tjáð í gær að þeim verði ekki greidd laun fyrir júlímánuð. Elías segir að uppsagnirnar komi mjög illa við starfsmenn. Fundað hafi verið með þeim í síðustu viku til að fara yfir hvað myndi gerast ef þessi staða kæmi upp. „Við fórum í dag að hitta starfsmannastjórann og erum að bíða eftir því að fyrirtækið verði formlega lýst gjaldþrota og munum þá gera kröfu í þrotabúið fyrir alla félagsmenn VR sem störfuðu hjá fyrirtækinu," segir Elías í samtali við Vísi. Elías segir að á endanum muni ábyrgðarsjóður létta undir með starfsfólkinu en það muni taka vikur eða jafnvel mánuði. Þeir verði hins vegar að fá fyrirgreiðslu í banka til að greiða reikninga um þessi mánaðarmót. „Þess vegna vorum við einmitt að vonast til þess að fólkið fengi greitt um þessi mánaðarmót," segir Elías. „Bankinn mat það þannig að þetta væri illskásti kosturinn til þess að bjarga verðmætum enda telur bankinn og aðrir lánadrottnar meiri hagsmuni af því að halda starfsemi félagsins gangandi og tryggja atvinnu stórs hluta starfsmanna Steypustöðvarinnar Mest. Með þessu er bankinn og aðrir lánadrottnar því aðeins að reyna að lágmarka skaðann og ekki síst að tryggja að 100 starfsmenn Steypustöðvarinnar Mest missi ekki vinnuna," segir í yfirlýsingu sem Már Másson, forstöðumaður Samskiptasviðs Glitnis, sendi Vísi vegna þessarar fréttar.
Mest lesið Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Viðskipti innlent Bora eftir jarðhita á Tenerife Viðskipti erlent Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Viðskipti innlent ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Viðskipti erlent „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Verslunin Air lokar í Kringlunni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Sjá meira