Lífið

Ásdís Rán og Garðar með jólaboð á Oliver

Boðskort Ásdísar og Garðars í jólaboðið um helgina.
Boðskort Ásdísar og Garðars í jólaboðið um helgina.

Hjónakornin Ásdís Rán Gunnarsdóttir og Garðar Gunnlaugssonar hafa ekki mikinn tíma hér á landi yfir hátíðirnar oghafa af þeirri ástæðu ákveðið að halda ,,lítið jólaboð" á Café Oliver næstkomandi laugardag fyrir fjölskyldu og vini.

Skagamaðurinn Garðar sem lék með sænska liðinu Norrköping undanfarin ár skrifaði undir þriggja ára samning við búlgarska liðið Lokomotiv Sofia þar sem þau hjón eru nú búsett. Búlgörsk slúðurblöð hafa ítrekað fjallað um fyrirsætuna og fótboltakappann.

,,Ég vildi bara setja þetta boð hér því það eru engin sérstök boðskort í gangi og ef þú tilheyrir okkar vinahóp þá ertu velkominn og mátt hafa samband á asdis@model.is," segir Ásdís Rán á bloggsíðu sinni.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×