Icelandic Group: 160 milljón evra hlutafjáraukning 3. nóvember 2008 17:35 Finnbogi Baldvinsson forstjóri Icelandic Group
Stjórn Icelandic Group hf. hefur boðað til hluthafafundar þriðjudaginn 11. nóvember nk. Fyrir fundinn verður lögð tillaga um lækkun hlutafjár til jöfnunar á uppsöfnuðu tapi og í kjölfarið tillaga um hlutafjárhækkun. Verði tillögurnar samþykktar mun Eignarhaldsfélagið IG ehf., sem m.a. er í eigu Brims hf. og Hraðfrystihússins Gunnvarar hf., skrá sig fyrir hlutafjáraukningunni og um leið verða stærsti hluthafi Icelandic Group. Hlutafjáraukningin skapar grundvöll til verulegrar lækkunar vaxtaberandi skulda Icelandic Group. Eftir breytingarnar verður eiginfjárhlutfall Icelandic Group um 30%. Icelandic Group flytur út, framleiðir og selur sjávarafurðir um allan heim. Á meðal viðskiptavina félagsins eru allar helstu matvörukeðjur og dreifingarfyrirtæki í Evrópu og USA og skilar starfsemin umtalsverðum gjaldeyristekjum til þjóðarbúsins. Rekstur félagsins hefur verið erfiður um skeið og var félagið afskráð úr Kauphöllinni síðastliðið vor. Með endurskipulagningunni er traustum stoðum rennt undir áframhaldandi rekstur og eru stjórnendur félagsins að auki bjartsýnir á að þrátt fyrir samdrátt á markaðssvæðum Icelandic muni ekki draga úr eftirspurn eftir afurðum félagsins. Stefnt er að því að skrá Icelandic Group í kauphöll á nýjan leik eins fljótt og aðstæður á hlutabréfamörkuðum leyfa. „Stjórn Icelandic Group leggur mikla áherslu á að tillögurnar nái fram að ganga. Styrking á efnahagsreikningi félagsins er nauðsynleg forsenda fyrir öflugri starfsemi sem byggir á þeim árangri sem þegar hefur náðst í viðsnúningi á rekstrinum. Mikilvægt er fyrir félagið að sýna fjárhagslegan styrk á þessum óvissutímum þegar aðgangur að lánsfé er erfiður. Tekjur Icelandic Group verða að mestu leyti til erlendis og nauðsynlegt er að Ísland fái áfram gjaldeyristekjur inn í landið eins greiðlega og mögulegt er. Icelandic Group hefur gegnt lykilhlutverki í markaðssetningu og dreifingu íslenskra sjávarafurða um allan heim og með þessari endurskipulagningu getum við lagt okkar af mörkum til þess að Ísland haldi sínu góða orðspori í sjávarútvegi og viðskiptum með fiskafurðir", segir Friðrik Jóhannsson, stjórnarformaður Icelandic Group. „Stjórnendur Icelandic hafa linnulaust unnið að hagræðingu í rekstri félagsins að undanförnu, bæði með sölu eigna og breytingum á framleiðslu- og sölueiningum. Starfsemin er afar umfangsmikil og um fimm þúsund starfsmenn okkar framleiða fiskafurðir fyrir hátt í fimm milljónir manna á hverjum degi. Sterk markaðsstaða gefur okkur tækifæri til sóknar og þess vegna er traustur fjárhagsgrunnur afar mikilvægur. Í kjölfar þessara breytinga getur starfsfólk okkar, viðskiptavinir, birgjar og aðrir samstarfsaðilar víða um heim áfram borið fullt traust til starfsemi Icelandic þrátt fyrir þrengingar á Íslandi og á alþjóðlegum fjármálamörkuðum. Icelandic Group stendur fyrir gæði og góða þjónustu og í þeim efnum verður hvergi slegið af í rekstrinum framundan," segir Finnbogi Baldvinsson, forstjóri Icelandic Group. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Icelandic Group.
Mest lesið Löggan bankaði upp á á skírdag Neytendur „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Neytendur Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Mælir með eistnesku poppi til að vekja börnin almennilega Atvinnulíf Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Samstarf Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Viðskipti innlent Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Viðskipti innlent Fleiri fréttir Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Sjá meira