Viðskipti innlent

BT óskaði eftir gjaldþrotaskiptum í dag

Á undanförnum dögum og vikum hefur verið róið að því öllum árum að tryggja áframhaldandi rekstur BT í óbreyttri mynd en án árangurs. Óskað var eftir gjaldþrotaskiptum í dag, mánudag.

Vonir standa til að hægt sé að koma BT aftur í rekstur og hafa viðræður verið í gangi um slíkt. Fyrir liggur undirritað kauptilboð í rekstur BT verslana sem þó er háð samþykki skiptastjóra.

Ljóst er að verslanir BT verða lokaðar enn um sinn meðan niðurstaða fæst í fyrirliggjandi kauptilboð.

Hjá BT starfa um 50 starfsmenn í 30 stöðugildum. Starfsmannafundur var haldin í kvöld og þar fengu starfsmenn upplýsingar um stöðuna ásamt aðstoð við að tryggja réttindi sín.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá BT nú í kvöld.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×