Bréf í DeCode aldrei lægri 11. júní 2008 06:30 Kári Stefánsson forstjóri. Sá sem keypti hlutabréf í DeCode fyrir átta árum getur selt þau og farið einu sinni í bíó fyrir andvirðið.
Gengi hlutabréfa í DeCode, móðurfélagi Íslenskrar erfðagreiningar, fór undir einn bandaríkjadal í gær og hafði aldrei verið lægra. Um miðjan dag stóð það í 96 sentum á hlut. DeCode var skráð á Nasdaq-hlutabréfamarkaðinn í Bandaríkjunum árið 2000. Gengi bréfanna endaði í 25,44 dölum á hlut á fyrsta degi og fór hæst í 28,75 dali 11. september sama ár. Eftir það tók það að lækka jafnt og þétt með stöku sveiflum. Miðað við gengið í gær hefur það fallið um 96 prósent frá fyrsta degi. Fyrir skráningu bréfanna voru dæmi um að þau gengju kaupum og sölum á gráum markaði á rúma sextíu dali á hlut. Hafi hlutafjáreigandi keypt bréf í DeCode fyrir eitt hundrað þúsund krónur á þeim gráa nemur verðmæti bréfa hans í dag um 1.700 krónum. Það dugar fyrir einum bíómiða – að Regnboganum undanskildum – stórum poka af poppi og kók. Eftir standa hundrað krónur í stöðumæli. - jab
Mest lesið Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Viðskipti innlent Fá að kaupa Pei og Motus Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Sjá meira