Viðskipti innlent

Glitnir kynnir sparnaðarleið tengda umverfissjóði

Glitnir kynnti í dag nýja sparnaðarleið sem félagið tengir umhverfismálum, þá sérstaklega endurnýjanlegri orku og sjálfbærum sjávarútvegi. Eftir því sem segir í tilkynningu frá bankanum nefnist sparnaðarleiðin Save&Save og verða vextirnir með þeim hæstu sem eru í boði á hverjum markaði fyrir sig. Leiðin var kynnt á Íslandi og í Noregi í dag en hér á landi verða vextir á óbundnum Save&Save reikningi 15 prósent.

Glitnir hyggst sem fyrr segir tengja þessa sparnaðarleið umhverfismálum og mun stofna nýjan sjóð sem nefnist Glitnir Globe - Sustainable Future Fund, eða sjálfbær sjóður fyrir sjálfbæra þróun. Þannig mun sjóðurinn stækka í réttu hlutfalli við fjölda viðskiptavina í Save&Save, en Glitnir greiðir 0,1 prósent ofan á vexti innstæðu á Save&Save reikningum á ársgrundvelli og renna þeir fjármunir í Glitnir Globe sjóðinn.

Glitnir segir í tilkynningunni að markmiðið með Save&Save sé að auka innlán á öllum mörkuðum sem Glitnir starfar á og gangi áætlanir bankans eftir muni Glitnir Globe sjóðurinn hafa um hálfan milljarð króna til ráðstöfunar innan fárra ára.

Áætlað er að sjóðsstjórn Glitnir Globe veiti árlega fé til verkefna sem tengjast þróun á sviði endurnýjanlegrar orku og sjálfbærum sjávarútvegi, hvort sem um er að ræða rannsóknarverkefni, viðskiptahugmyndir eða fræðsluverkefni.

Í stjórn sjóðsins verða sex manns, dr. Rajendra K. Pachauri, hagfræðingur og Nóbelsverðlaunahafi, Johan Olva Koss, fyrrverandi ólympíumeistari í skautahlaupi og framkvæmdastjóri samtakanna "Right To Play", dr. Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, Árni Magnússon, framkvæmdastjóri á orkusviði Glitnis og fyrrverandi ráðherra, og hjónin Grete og Jack Waitz. Grete er heimsþekkt íþróttakona sem hefur sigrað í New York maraþoninu níu sinnum og þau hjón hafa unnið náið með Krabbameinsfélaginu í Noregi.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×