Greining Glitnis stendur við spá um 7% lækkun fasteignaverðs 25. júní 2008 09:34
Greining Glitnis spáir því að fasteignaverð muni lækka um 7% á árinu. Um er að ræða óbreytta spá greiningar frá í fyrra mánuði. Heldur spáin að mati greiningarinnar þrátt fyrir aðgerðir ríkisstjórnarinnar á fasteigna- og fjármálamarkaði. Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Glitnis. Þar segir að greiningin telji þó ekki að aðgerðir ríkisstjórnarinnar séu bitlausar. „Þvert á móti teljum við að þær muni varna frekari kólnun á íbúðamarkaði en nú þegar er í pípunum og flýta fyrir bata íbúðamarkaðarins þegar ytri aðstæður breytast til betri vegar," segir í Morgunkorninu. Aðgerðir ríkisstjórnarinnar koma fyrst og fremst til móts við þann vanda sem lýtur að lausafjárþurrð á íbúðalánamarkaði. Lausafjárkrísan er þó ekki eini mótvindurinn sem íbúðamarkaðurinn stendur frammi fyrir um þessar mundir. Ekki má gleyma þeim áhrifum sem aukið atvinnuleysi, minnkandi kaupmáttur og aukin svartsýni neytenda hefur. Þá spilar mikið framboð íbúðahúsnæðis einnig stórt hlutverk í þeirri þróun sem framundan er og eykur þrýsting til verðlækkunar. Loks spilar manntalsfræðin stórt hlutverk en gera má ráð fyrir að hægja muni á fólksfjölgun í kjölfar þess sem atvinnuleysi mun aukast og erlendir starfsmenn hverfa í auknum mæli af landi brott samhliða því sem eftirspurn dregst saman á vinnumarkaði. Jafnvel megi búast við fólksfækkun. Af þessum sökum geta aðgerðir ríkisstjórnarinnar einar og sér ekki snúið við þeirri þróun sem framundan er á íbúðamarkaði.
Mest lesið Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Viðskipti innlent „Það eru engin fórnarlömb hér“ Viðskipti innlent „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Viðskipti innlent „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Viðskipti innlent Loka á umdeilda veðmálasíðu í Danmörku Viðskipti erlent Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar Viðskipti innlent Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu Viðskipti innlent Trump frestar boðuðum ofurtollum á Kanada Viðskipti erlent Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Viðskipti innlent Fleiri fréttir Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ „Biðin er dýrust“ Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Sjá meira