Viðskipti innlent

Óljós áhrif nýrra gjaldeyrisreglna á fjármálastofnanir

Seðlabankinn
Seðlabankinn

Seðlabankinn hefur tilkynnt um nýjar reglur um gjaldeyrisjöfnuð fjármálastofnana sem taka gildi þann 1. júlí næstkomandi. Þetta kemur fram í Hálf-fimm fréttum Kaupþings og þar segir jafnframt að nýju reglurnar muni þrengja heimildir fyrir stöðutöku á gjaldeyrismarkaði. Nú geta fjármálafyrirtæki vikið 10% frá almennum gjaldeyrisjöfnuði. Fyrir breytinguna gat sama hlutfall verið allt að 30%.

Í Hálf-fimm fréttum Kaupþings segir einnig að flest bendi til þess að nýju reglurnar muni hafa lítil sem engin áhrif á gjaldeyrisstöðu íslenskra fjármálastofnana. Við fyrstu sýn virðist sem helsta ástæðan fyrir því að Seðlabankinn hafi þrengt ramma fjármálastofnana til stöðutöku á gjaldeyrismarkaði vera sú að bankinn vilji búa í haginn fyrir mögulegum inngripum á gjaldeyrismarkaði og koma þannig í veg fyrir að stórir innlendir aðilar geti tekið stöðu á móti honum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×