Viðskipti innlent

Íbúðalánum bankana fækkar um 93% milli ára

Íbúðalán innlánastofnana í júnímánuði voru 46 talsins og fækkaði um 30 frá fyrri mánuði. Í júní fyrir ári síðan voru íbúðalán innlánastofnanna hinsvegar 660 talsins og hefur þeim því fækkað um 93% á milli ára.

Greining Glitnis fjallar um málið í Morgunkorni sínu. Þar segir að íbúðalán á fyrstu sex mánuðum ársins voru 589 talsins. Á sama tíma fyrir ári síðan voru íbúðalán innlánastofnanna hinsvegar 2.877 talsins. Íbúðalánum hefur því fækkað um 80% á fyrstu sex mánuðum ársins.

Íbúðalán Íbúðalánasjóðs og lífeyrissjóðanna eru ekki inni í þessum tölum enda ná þær eingöngu til lánveitinga banka og sparisjóða. Alls námu útlán banka og sparisjóða til íbúðakaupa tæplega 4,9 milljörðum kr á fyrstu sex mánuðum ársins en Íbúðalánasjóður lánaði 25 milljarða kr til íbúðakaupa á sama tímabili.

Á sama tíma fyrir ári síðan hafði Íbúðalánasjóður hinsvegar lánað 32 milljarða kr til íbúðakaupa og bankar og sparisjóðir 27 milljarða kr.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×