Baldur fékk engan milljarð 14. júní 2008 14:33 Halldór Kristmannsson.
Halldór Kristmannsson, framkvæmdastjóri Samskiptasviðs Eimskips segir fullyrðingar um innleystan söluhagnað Baldurs Guðnasonar fyrrverandi forstjóra Eimskips byggðar á misskilningi. Í Fréttablaðinu í dag er sagt að Baldur hafi fengið næstum milljarð króna við starfslok vegna söluréttar á kaupréttum. Halldór segir að um hafi verið að ræða sölurétt sem Baldur hafði vegna hlutabréfakaupa sinna í félaginu, þar sem Eimskip bæri að kaupa bréfin til baka og yfirtaka skuldbindingar sem þeim tengdust við starfslok. Það hafi verið gert eins og samkomulag var um en ekki sé um það að ræða að Baldur hafi innleyst einhvern hagnað vegna þessarra viðskipta og því hafi engin greiðsla hafi farið til Baldurs. Í greininni er þess einnig getið að stjórn Eimskipa hafi þagað um Innovate-málið svokallaða í þrjá mánuði en á dögunum var greint frá því að Innovate, dótturfélag Eimskips yrði afskrifað í heilu lagi. Heimildarmenn blaðsins úr viðskiptalífinu segja að eðllegt hefði verið að Eimskip hefði greint frá málinu til Kauphallar en raunin varð, en frá málinu var greint í þessari viku. Halldór segir að félagið eigi í reglulegum samskiptum við eftirlitsaðila á markaði og berist fyrirspurnir vegna upplýsingagjafar sem málinu tengist verði því eðlilega svarað. „Fram hefur komið að stjórn fékk ákveðnar upplýsingar um rekstrarvanda Innovate í febrúar en það er hinsvegar fremur stutt síðan að ljóst var að veruleg verðmæti gætu tapast." segir Halldór og bætir við: „Frá þeim tíma var lögð rík áhersla á að verja hagsmuni hluthafa félagsins, viðskiptavina og lánadrottna." „Unnið var að sölu ákveðinna eigna Innovate og viðræður hófust við væntanlega kaupendur. Til að verja fyrrnefnda hagsmuni, nýtti Eimskip sér ákvæði í lögum um verðbréfaviðskipti, sem gefur útgefanda mögulegt að fresta birtingu verðmótandi upplýsinga. Það voru miklir hagsmunir í húfi og ég tel að með frestingu á birtingu hafi okkur tekist að lágmarka afskrift vegna Innovate, sem annars hefði getað verið hærri. Hafi þessar upplýsingar verið birtar fyrr hefði það geta sett viðræður við hugsanlega kaupendur í uppnám og haft bein áhrif á verðmæti þeirra eigna," segir hann. Eimskip vill einnig koma á framfæri leiðréttingu er varðar stjórnarsetu Sindra Sindrasonar, núverandi stjórnarformanns. Hann tók sæti í stjórn félagsins á haustmánuðum 2006 en fyrri fjárfesting í Innovate var í mars 2006 og kaup á Corby chilled í Bretlandi í maí 2006. Hann hafi því ekki setið í stjórn félagsins þegar ákveðið var að kaupa Innovate. Hann hafði hins vegar tekið sæti áður en ákveðið var að kaupa félagið að fullu.
Mest lesið Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Viðskipti innlent Fá að kaupa Pei og Motus Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sjá meira