Aðildarviðræður við ESB nauðsyn til að fá svör við spurningum 7. september 2008 13:27
Jónas H. Haralz fyrrum bankastjóri og efnahagsráðgjafi segir að það sé nauðsynlegt að fara í aðildarviðræður við Evrópusambandið til að fá skýr svör um hvað það hefði í för með sér. Þetta kom fram í máli Jónasar í þættinum Silfri Egils í Sjónvarpinu í hádeginu. Jónas segir að umræðunni um aðildina að ES hafi verið haldið í herkví undanfarin ár og eilífu pexi án þess að menn vissu hvaða kjör væru í boði. Og hann telur að það myndi mjög fljótt koma í ljós í aðildarviðræðum hvort aðildin væri álitlegur kostur eða ekki. Aðspurður um hvort hann teldi ekki að með aðild að ES væru Íslendingar að afsala sér fullveldi sínu. Hann svaraði því á þá leið hvort ekki mætti spurja þær þjóðir sem aðild eiga að ES hvort þær teldu sig hafa afsalað sér fullveldinu. "Myndum við ekki auka fullveldi okkar með auknu alþjóðlegu samstarfi?" spyr Jónas. Fram kom í máli Jónasar að sjálft peningakerfið í landinu væri í uppnámi og við því þyrfti að bregðast. Spurningin væri hvort hægt væri að halda kerfinu áfram og þá í bættu formi en þeirri spurningu þyrfti Seðlabankinn að svara. Jónas telur ljóst að skortur á samræmingu milli ríkisins og Seðlabankans væri stór hluti vandans og spurði hvort vilji væri fyrir því að endurskoða peningakerfið og ná fram nauðsynlegri samræmingu. Það væri eðlilegt að Seðlabankinn svaraði þeirri spurningu en það hefði bankinn ekki gert. Jónas telur að það hafi verið mistök að leggja niður Þjóðhagsstofnun. Það hefði gerst vegna trúnaðarbrests milli sérfræðinga stofnunarinnar og stjórnmálamanna. "En í slíkum tilvikum leggur maður ekki stofnunina niður heldur skiptir um fólk," segir Jónas. Jónas telur einnig að við núverandi aðstæður í efnahagslífinu sé það "afar varhugavert" að ætla að nota stóriðju og aðrar stórar framkvæmdir til að laga stöðuna. Að ná stöðugleika og góðri stjórn á efnahagslífinu væri hið eina rétta í stöðunni.
Mest lesið Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Viðskipti innlent Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Bora eftir jarðhita á Tenerife Viðskipti erlent Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Viðskipti innlent ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Viðskipti erlent „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Viðskipti innlent Verslunin Air lokar í Kringlunni Viðskipti innlent Fljúga til Færeyja árið um kring Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Sjá meira