Kaupþing spáir 14,7% verðbólgu í ágúst 20. ágúst 2008 16:59 Ásgeir Jónsson, forstöðumaður greiningardeildar Kaupþings.
Greiningardeild Kaupþing segir í Hálf fimm fréttum sínum gera ráð fyrir að vísitala neysluverðs hækki um 1,1% í ágúst. Mun tólf mánaða verðbólga þá ná 14,7% samanborið við 13,5% í júlímánuði. „Búast má við háum mánaðarhækkunum neysluverðs næstu þrjá mánuði en ef gengi krónunnar staðnæmist mun töluvert hægja á verðbólgunni í framhaldinu. Drifkraftar verðbólgunnar í ágúst Gera ráð fyrir verðhækkunum í flestum geirum líkt og undanfarna mánuði vegna kostnaðarhækkana sem ekki hefur enn verið velt út í verðlagið. Kostnaðarhækkanir eru m.a. tilkomnar af því að gengi krónunnar er þriðjungi lægra en á sama tíma í fyrra með tilheyrandi áhrifum á innflutningsverð. Auk þess hafa fyrirtæki orðið fyrir ýmiskonar kostnaðarauka að undanförnu svo sem vegna hærri fjármagnskostnaðar og hærra hrávöruverðs. Í ofanálag munu útsölulok og innkoma nýrrar vöru valda verðhækkunum nú í ágúst næstu tvo mánuði á eftir. Í ágúst má gera má ráð fyrir að húsnæði, áhrif útsöluloka og matvara leggi mest til hækkunar vísitölu neysluverðs. Til lækkunar mun eldsneytisverð hinsvegar vega þyngst og nema áhrifin tæplega 0,2 prósentustigum. Húsnæðisverð áfram til hækkunar Þrátt fyrir að horfur séu á einhverjum húsnæðisverðslækkunum á næstu misserum mun kostnaður vegna eigin húsnæðis tæpast vera til lækkunar VNV á allra næstu mánuðum. Ástæðan er annarsvegar að lítilsháttar hækkanir hafa mælst á húsnæðisverði allra síðustu mánuði og gildir það sama um nýjustu verðmælingu skv. Fasteignamati ríkisins. Jafnframt hefur vaxtakostnaður vegna húsnæðis að undanförnu vigtað töluvert til hækkunar - til að mynda voru áhrifin 0,08 prósentustig til hækkunar í júlí sl. Því gæti orðið nokkur bið á að húsnæðisliðurinn fari að hafa áhrif til lækkunar á vísitölu neysluverðs."
Mest lesið Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur Viðskipti innlent Húsnæði Kjötborgar til sölu Viðskipti innlent Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Viðskipti innlent Verðbólga hjaðnar Viðskipti innlent Afkoma í samræmi við áætlanir hjá Símanum Viðskipti innlent Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Viðskipti innlent Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Viðskipti innlent Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Viðskipti innlent Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Viðskipti innlent Lúxusbílaframleiðandi bauð íslenskum bræðrum í draumaferð til Kína Samstarf Fleiri fréttir Húsnæði Kjötborgar til sölu Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Verðbólga hjaðnar Afkoma í samræmi við áætlanir hjá Símanum Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Sjá meira