Jón Ásgeir og Hannes fóru ekki með í Miðfjarðará 20. ágúst 2008 14:29 Jón Ásgeir Jóhannesson stjórnarformaður Baugs
Jón Ásgeir Jóhannesson stjórnarformaður Baugs og FL Group, og Hannes Smárason, fyrrverandi forstjóri FL Group og þáverandi stjórnarformaður Geysis Green Energy, voru ekki í veiðiferðinni í Miðfjarðará sem Vísir greindi frá fyrr í dag. Þetta staðfesti Jón Ásgeir Jóhannesson í samtali við Vísi í dag. Eins og kom fram fyrr í dag fóru Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson fyrrverandi borgarstjóri, Haukur Leósson fyrrverandi stjórnarformaður Orkuveitunnar og Björn Ingi Hrafnsson fyrrverandi varaformaður stjórnar Orkuveitunnar og REI, í veiði í Miðfjarðará í ágústmánuði á síðasta ári. Þeir dvöldu ásamt Stefáni Hilmarssyni fjármálatjóra Baugs og eiginkonum sínum við veiðar í þrjá daga en Baugur hafði tekið frá veiðileyfi fyrir mannskapinn þessa helgi. Rúmlega mánuði síðar komu upp á yfirborðið hugmyndir um að sameina REI og GGE en síðarnefnda félagið var að langstærstum hluta í eigu Baugs í gegn um eignarhlut sinn í FL Group. Guðlaugur og félagar segjast ekki hafa vitað að veiðiferðin hafi verið í boði Baugs og að málefni REI og GGE hafi ekki verið rædd í ferðinni. Guðlaugur segist til að mynda hafa verið boðinn í ferðina af Hauki Leóssyni og gert upp við hann að veiðiferðinni lokinni. Björn Ingi og Vilhjálmur segja að þeir hafa þegið boð Hauks í ferðina og að hann hafi greitt veiðileyfin fyrir þá.
Tengdar fréttir Stórlaxar veiddu í boði Baugs við upphaf REI máls Skömmu áður en vinna við fyrirhugaðan samruna Reykjavík Energy Invest (REI) og Geysi Green Energy (GGE) hófst fóru helstu áhrifamenn Orkuveitu Reykjavíkur ásamt Guðlaugi Þór Þórðarsyni heilbrigðisráðherra í laxveiði í boði Baugs. 20. ágúst 2008 11:32 Þriggja daga veiði í Miðfjarðará kostar hálfa milljón Miðfjarðará við Laugabakka er um 200 km frá Reykjavík en hún er 113 km löng með yfir tvö hundruð merktum veiðistöðum. Áin er af mörgum talin fallegust áa hér á landi en veiðisvæðið samanstendur af fjórum ám. Dagurinn í Miðfjarðará kostar um 150 þúsund krónur með gistingu í glæsilegu veiðihúsi og fæði. 20. ágúst 2008 12:56 Vissi ekki að Baugur var með Miðfjarðará á leigu Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra, segist ekki hafa haft hugmynd um að Baugur hafi verið með Miðfjarðará á leigu þegar hann fór þangað í laxveiði í ágúst í fyrra. „Ég hef aldrei farið í boði neins fyrirtækis í veiði, aldrei,“ segir Guðlaugur í samtali við Vísi. Hann segir að Haukur Leósson, þáverandi stjórnarformaður Orkuveitunnar, hafi boðið sér í ferðina. „Ég gerði síðan upp við Hauk,“ segir Guðlaugur Þór. 20. ágúst 2008 12:41 Mest lesið Bó kvaddur í hinsta sinn Innlent Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Innlent „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Innlent Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Innlent Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Innlent Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ Innlent Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent „Hún er skrifuð af mér“ Innlent Fleiri fréttir Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Sjá meira
Stórlaxar veiddu í boði Baugs við upphaf REI máls Skömmu áður en vinna við fyrirhugaðan samruna Reykjavík Energy Invest (REI) og Geysi Green Energy (GGE) hófst fóru helstu áhrifamenn Orkuveitu Reykjavíkur ásamt Guðlaugi Þór Þórðarsyni heilbrigðisráðherra í laxveiði í boði Baugs. 20. ágúst 2008 11:32
Þriggja daga veiði í Miðfjarðará kostar hálfa milljón Miðfjarðará við Laugabakka er um 200 km frá Reykjavík en hún er 113 km löng með yfir tvö hundruð merktum veiðistöðum. Áin er af mörgum talin fallegust áa hér á landi en veiðisvæðið samanstendur af fjórum ám. Dagurinn í Miðfjarðará kostar um 150 þúsund krónur með gistingu í glæsilegu veiðihúsi og fæði. 20. ágúst 2008 12:56
Vissi ekki að Baugur var með Miðfjarðará á leigu Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra, segist ekki hafa haft hugmynd um að Baugur hafi verið með Miðfjarðará á leigu þegar hann fór þangað í laxveiði í ágúst í fyrra. „Ég hef aldrei farið í boði neins fyrirtækis í veiði, aldrei,“ segir Guðlaugur í samtali við Vísi. Hann segir að Haukur Leósson, þáverandi stjórnarformaður Orkuveitunnar, hafi boðið sér í ferðina. „Ég gerði síðan upp við Hauk,“ segir Guðlaugur Þór. 20. ágúst 2008 12:41