Axel, Ingimundur og Sigurður Ari norskir meistarar Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 3. maí 2008 14:02 Sigurður Ari Stefánsson skoraði átta mörk í dag. Mynd/Vilhelm
Elverum varð í dag norskur meistari í handbolta eftir afar óvæntan sigur á deildar- og bikarmeisturum Drammen í úrslitaleik um meistaratitilinn í dag. Elverum vann tveggja marka sigur, 33-31, og leiddi með sama mun í hálfleik, 16-14. Íslendingarnir í liðinu áttu stórleik en Sigurður Ari Stefánsson skoraði átta mörk í leiknum og Ingimundur Ingimundarson sjö. Markahæstur í liði Elverum var Steffen Stormo Stegavik með tíu mörk en hann hefur reyndar þegar samið um að leika með Drammen á næstu leiktíð. Elverum skoraði fyrstu þrjú mörk leiksins og lét forystuna aldrei af hendi. Mest varð forystan í fyrri hálfleik fimm mörk en Drammen náði að jafna stöðuna, 24-24, þegar tæpur stundarfjórðungur var til leiksloka. Sigurður Ari innsiglaði svo sigurinn með marki þegar sautján sekúndur voru til leikskloka og gríðarlegur fögnuður braust út í leikslok. Axel Stefánsson er þjálfari Elverum og greinilegt að hann hefur unnið þrekvirki með Elverum sem varð í fimmta sæti deildarkeppninnar og þótti því fyrirfram ólíklegt til að vinna sigur í úrslitakeppninni. Axel var þó látinn fara um miðja leiktíð og því ljóst að í dag var hans síðasti leikur með liðið. Hann hefur þjálfað Elverum í tvö ár. Samúel Ívar Árnason lék einnig með liðinu í vetur en hætti þegar hann flutti til Oslóar. Elverum drógst gegn Runar sem varð í öðru sæti deildarinnar í fjórðungsúrslitum og vann þá leiki, 33-28 og 35-30. Í undanúrslitum lagði liðið Haugaland, 27-24, sem varð í áttunda sæti deildarinnar. Gömlu handboltakempurnar Glenn Solberg og Frode Hagen léku sinn síðasta leik á ferlinum í dag en þeir hefðu sjálfsagt viljað ljúka ferlinum á betri nótum. Hagen var markahæstur leikmanna Drammen með tíu mörk en Solberg skoraði fimm. Vísir óskar þeim Ingimundi, Sigurði Ara og Axel innilega til hamingju með þennan stórkostlega árangur.
Handbolti Mest lesið Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Enski boltinn Hafa náð í leikmenn frá fjórum bestu liðunum Körfubolti Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Enski boltinn Uppgjörið: Valur - Zrinjski Mostar 1-0 | Sterkur Evrópusigur hjá Val Fótbolti Er nýi Haaland íslenskur? Fótbolti Arnór í leyfi frá störfum Fótbolti The Times: Norska sambandið mun kvarta undan Trump Fótbolti „Kvöld eins og þetta græðir ekki sárin en lætur þó hlutina vera miklu betri“ Fótbolti KR sækir sænskan landsliðsmann Körfubolti Haaland dýrastur í sögu Fantasy Enski boltinn Fleiri fréttir „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Unnu síðustu tvo leikina með samtals 25 marka mun Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Sjá meira