Átti von á þessum viðbrögðum Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 19. janúar 2008 21:10 Patrekur Jóhannesson er gamall refur með landsliðinu. „
Ég átti von á stórsigri hjá okkar mönnum í dag. Fyrri hálfleikur var auðvitað alveg frábær," sagði Patrekur Jóhannesson, einn þriggja sérfræðinga Vísis um EM í handbolta. Patrekur er staddur í Noregi og sagði að það hefði verið greinilegt að leikmenn hefði verið fyllilega einbeittir í leiknum í dag og náð að stilla á rétt spennustig. „Ég átti von á þessum viðbrögðum leikmanna eftir Svíaleikinn," sagði Patrekur. „Vörnin var mjög góð hjá okkur og var ég sérstaklega ánægður með Fúsa. Hreiðar var líka frábær í markinu." En rétt eins og gegn Svíum hefði sóknarleikurinn mátt vera betri. „Við vorum í vandræðum í sókninni. Snorri þarf að finna sig betur auk þess sem að Einar og Logi voru ekki að hitta vel í dag. Menn þurfa samt að halda áfram og reyna, annars skora menn ekki." „Við hreyfðum okkur vel í vörninni og þurfum að fá sama hreyfanleikann í sókninni." „Á morgun fáum við svo enn sterkari vörn á móti okkur. Við erum þannig lið að við erum bestir þegar hraði leiksins er mikill og Guðjón Valur er öflugur í hraðaupphlaupunum. Það er því lykilatriði að varnarleikurinn verði eins góður og í dag og við fáum mörg hraðaupphlaup." Hann segir að það verði mjög erfitt verkefni sem bíði íslenska landsliðsins á morgun. „Frakkarnir eru örugglega ekki búnir að gleyma leiknum sem fór fram í Magdeburg í fyrra. Þetta er þó alls ekki vonlaust og það er allt hægt. Það þarf að hafa trú á verkefninu enda vinnum við aldrei leikinn ef við sjálfir höfum ekki trú á því." Og þar að auki tekur hann ekki einu sinni leik Frakklands og Slóvakíu með í reikninginn en þar unnu Frakkar nauman sigur. „Frakkar voru svo daprir í þeim leik og þeim var því miður ekki refsað fyrir það. Þeir litu á þennan leik sem æfingaleik og sýndu andstæðingnum óvirðingu af verstu gerð. En gegn Svíum í dag var allt annað að sjá til þeirra."
Mest lesið Hausverkur fyrir Iraola Enski boltinn Uppgjörið: KA - Þór 0-0 | Steindauður norðanslagur Íslenski boltinn „Það fyrsta sem sést er rassinn á mér“ Sport Bjóða hverjum sem vinnur Littler 84 milljónir Sport Mbappé sár eftir HM Fótbolti Rosenborgarar Freys óstöðvandi Fótbolti „Hefði nú verið betra að vera með tvo sigra“ Íslenski boltinn „Góðir tímar framundan“ Íslenski boltinn „Þetta eru fagmenn sem lifa fyrir boltann“ Íslenski boltinn Littler rústaði metum og varði titilinn Sport Fleiri fréttir Hafnaði mörgum góðum tilboðum og fór frekar heim „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Unnu síðustu tvo leikina með samtals 25 marka mun Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Sjá meira