Segir Kaupþing í lausafjárkreppu í Noregi - Bull, segir Kaupþing 13. júní 2008 10:37
Haft er eftir bankasérfræðingi í viðskiptablaðinu Dagens Næringsliv að lausafjárstaða Kaupþings í Noregi sé orðin svo slæm að bankinn hringi nú út til viðskiptavina sinna og biðji þá um að auka innlán sín. Sérfræðingurinn, Tom R. Svendsen hjá Carnegie, segir að þetta bendi til þess að lausafjárkreppa sé í uppsiglingu hjá bankanum í Noregi. Þessu hafnar Christian Almskog markaðsstjóri Kaupþings í Noregi. Christian segir lausafjárstöðuna í góðu lagi en hinsvegar sé bankinn í herferð til að auka markaðshlutdeild sína á norska bankamarkaðinum. Fram kemur í Dagens Næringsliv að venjulega komi 60-80% af fjármögnun norskra banka frá innlánum í þeim en hjá Kaupþingi sé þetta hlutfall aðeins 36%. Hafi Kaupþing sett sér það markmið að auka hlutfallið í 50% fyrir árslok. Samkvæmt fréttinni í Dagens Næringliv hringir Kaupþing í alla þá viðskiptavini sína sem eiga minna en 5.000 nkr. inni á reikningum sínum og bjóði þeim betri vaxtakjör ef þeir auki inneign sína. Jónas Sigurgeirsson, framkvæmdastjóri samskiptasviðs Kaupþings, vísar því alfarið á bug í samtali við Vísi að lausafjárstaða bankans sé slæm. Hér sé aðeins um sölumennsku að ræða. „Í Noregi er verið að auka innlán og þetta er tilboð sem viðskiptavinum okkar er boðið og ekkert óeðlilegt við það. Það er verið að auka markaðshlutdeild í Noregi og keppa um innlán við aðra banka," segir Jónas.
Mest lesið Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Viðskipti innlent Fá að kaupa Pei og Motus Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Sjá meira