Viðskipti innlent

Enn lækkar DeCode

Gengi bréfa í DeCode Genetics var komið niður í 84 cent á hlut við lokun markaðar í Bandaríkjunum í dag. Þetta er sögulegt lágmark hjá DeCode sem er móðurfélag Íslenskrar erfagreiningar.

DeCode var skráð á Nasdaq-hlutabréfamarkaðinn í Bandaríkjunum árið 2000. Það fór hæst í 28,75 prósent 11. september sama ár en tók þá að lækka jafnt og þétt.

Miðað við gengi bréfa í líftæknifélaginu í dag nemur markaðsverðmæti félagsins 53,15 milljónum dala, jafnvirði 4,1 milljarði íslenskra króna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×